„Vitum að við getum skorað fullt af mörkum“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. júní 2026 21:49 Arnór Ingvi skoraði eitt og lagði upp annað fyrir KR í kvöld. Vísir/Anton Brink Arnór Ingvi Traustason átti frábæran leik í liði KR er liðið vann 5-3 sigur gegn ÍA í Bestu-deildinni í kvöld.
Arnór Ingvi skoraði eitt og lagði upp annað í sterkum sigri KR, sem situr í öðru sæti deildarinnar með 28 stig eftir ellefu leiki. „Það var mjög sætt að klára þetta. Þetta var mjög strembið og við vorum að fá á okkur mjög ódýr mörk. Mörk sem við getum hæglega komið í veg fyrir,“ sagði Arnór Ingvi í leikslok. „En við töpum aldrei trúnni og vitum að við getum skorað fullt af mörkum, sérstaklega hérna á heimavelli. Þannig við töpum aldrei trúnni og það var bara virkilega sætt að taka sigurinn. Það var bara geggjað.“ Hingað til hefur KR verið liðið sem mætir til leiks af mikilli orku og keyrir á lið frá fyrstu mínútu. Í kvöld voru það hins vegar Skagamenn sem settu pressuna í upphafi leiks, en Arnór segir það ekki endilega hafa komið KR-ingum á óvart. „Svo sem ekki, en þessi orka hjá þeim dugði kannski frekar mikið lengur en við bjuggumst við. En bara vel gert hjá þeim að mæta svona sterkir og vel gíraðir í þennan leik. Það kom okkur aðeins í opna skjöldu þegar þeir breyttu til í hálfleik og fóru í fimm manna vörn. Við þurftum að aðlagast mismunandi hlutum sem mér fannst við gera bara nokkuð vel.“ Þá hrósaði Arnór sínu liðið fyrir að hengja ekki haus þrátt fyrir að hafa fengið á sig tvö mörk snemma leiks, það seinna aðeins um mínútu eftir að KR-ingar jöfnuðu metin í 1-1. „Við hættum aldrei og eins og ég sagði áðan þá töpum við aldrei trúnni, sérstaklega hérna á heimavelli. Við vitum að við getum skorað fullt af mörkum og við sköpum nægilega mikið. Stundum megum við fara ennþá betur með færin okkar og skora ennþá meira.“ Að lokum segir Arnór að KR-ingar séu ekkert að horfa á töfluna, þrátt fyrir að þeir séu að elta Víking, sem trónir á toppnum. „Alls ekki. Hundrað prósent ekki. Við gerum bara okkar og svo getum við skoðað þetta bara þegar tímabilið er búið,“ sagði Arnór að lokum.
Besta deild karla Íslenski boltinn KR ÍA Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Sjá meira