Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Atli Ísleifsson skrifar 18. júní 2026 06:13 Helmingur nýrra íbúða á söluskrá eru nú til sölu í meira en 260 daga samkvæmt nýrri skýrslu HMS. Vísir/Vilhelm Fasteignamarkaðurinn á Íslandi er enn í aðlögunarfasa með raunverðslækkunum og hægari sölu. Auglýsingatími íbúða hefur lengst töluvert undanfarið en tæplega fjórðungur allra íbúða sem auglýstar voru til sölu í byrjun júní hafði verið á söluskrá í meira en tólf mánuði samanborið við um 16 prósent á sama tíma í fyrra. Fasteignasalar telja markaðinn enn þróast í átt að því að verða meiri kaupendamarkaður.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem birt var í dag. Þar segir að helmingur óseldra nýrra íbúða hafi verið á sölu í meira en 260 daga samanborið við 183 daga í júní í fyrra. Þó nokkrum fjölda kaupsamninga sé þó þinglýst, þótt þeir séu að jafnaði færri en á sama tíma í fyrra. Hlutdeild fyrstu kaupenda hefur verið talsverð síðustu mánuði þrátt fyrir að fjármögnunarkostnaður fasteigna hafi verið hár um nokkurt skeið. Rýmkun lánþegaskilyrða fyrstu kaupenda og breytingar á reglum um hlutdeildarlán hafa þar áhrif. Fram kemur að rétt tæplega 40 prósent kaupsamninga í apríl hafi varðað fyrstu fasteignakaup, samkvæmt mælaborði HMS um fyrstu kaupendur. Það sé hæsta hlutfall fyrstu kaupa sem mælst hafi innan mánaðar á því tímabili sem mælaborðið taki til, það er frá á ársbyrjun árið 2007. Nýskráðum leigusamningum fækkar Í skýrslunni segir að á leigumarkaði megi jafnframt greina merki um minni eftirspurnarþrýsting. „Áfram hægir á hækkun leiguverðs sem hefur staðið í stað að raunvirði undanfarið ár. Þá hafa færri nýir leigusamningar tekið gildi í hverjum mánuði í ár samanborið við í fyrra þrátt fyrir að almenn skráningarskylda hafi tekið gildi um áramótin. Fleiri leigusamningar féllu jafnframt úr gildi í nýliðnum maí samanborið við í maí í fyrra, en leigusamningar falla að jafnaði úr gildi í stórum stíl við lok skólaárs á vorin. Óverðtryggð lán áfram í meirihluta nýrra lána Lánamarkaðurinn hefur einkennst af aukinni ásókn heimila í óverðtryggð íbúðalán hjá bönkunum undanfarið eftir að verðtryggð lán frá lífeyrissjóðunum höfðu verið allsráðandi í fyrra. Bankarnir hafa lítið nýtt sér undanþáguheimildir frá hámarki greiðslubyrðarhlutfalls, en hærra hámarksveðsetningahlutfall hefur nýst fyrstu kaupendum. Útlit fyrir að færri íbúðir verði fullbúnar annað árið í röð Byggingarmarkaðurinn hefur verið rólegri það sem af er ári samanborið við undanfarin ár en færri nýjar íbúðir hafa orðið fullbúnar á fyrstu fimm mánuðum þessa árs samanborið við síðustu tvö ár. Hagtölur benda einnig til þess að íbúðafjárfesting hafi dregist saman í ár, auk þess sem starfsfólki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hefur fækkað lítillega,“ segir í skýrslunni. Enn mikill kaupendamarkaður Í skýrslunni segir að fasteignasalar telji markaðinn enn þróast í átt að því að verða meiri kaupendamarkaður ef marka megi niðurstöður mánaðarlegrar viðhorfskönnunar HMS meðal félagsmanna í Félagi fasteignasala. Könnunin var lögð fyrir í fjórtánda sinn nú í upphafi júnímánaðar og svarhlutfall var tæplega 32%, en langflestir svarendur miðla aðallega fasteignum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. Rétt rúmlega helmingur svarenda telur markaðinn vera kaupendamarkað og um 39% til viðbótar telja að um mikinn kaupendamarkað sé að ræða. Um 10% svarenda telja markaðinn hvorki vera kaupenda- né seljendamarkað en enginn telur að markaðnum megi lýsa sem seljendamarkaði þessa stundina. Á kaupendamarkaði, þar sem seljendur eru hlutfallslega margir samanborið við mögulega kaupendur, er eðlilegt að verðþrýstingur sé takmarkaður. Það er einmitt mat rétt rúmlega 70% fasteignasala að verð á fasteignamarkaði fari lækkandi þessa stundina. Rétt tæplega 30% svarenda telja verð á markaði vera stöðugt en einungis 1% svarenda telja verð fara hækkandi. Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan telja fasteignasalar að dregið hafi úr verðþrýstingi á markaðnum undanfarið ár á sama tíma og markaðurinn hefur þróast í átt að því að verða meiri kaupendamarkaður. Viðhorf fasteignasala er í samræmi við þróun vísitölu íbúðaverðs sem hefur lækkað að raunvirði á ársgrundvelli undanfarna 10 mánuði,“ segir í skýrslunni.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira