Körfubolti

Besti ungi leik­maður síðasta tíma­bils í Ár­mann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Styrmir Jónasson er orðinn leikmaður Ármanns
Styrmir Jónasson er orðinn leikmaður Ármanns Mynd: Ármann

Ármenningar hafa samið við Skagamanninn Styrmi Jónasson en félagið tilkynnti um vistaskiptin rétt í þessu.

Styrmir var valinn besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Bónus-deild karla en hann féll með ÍA niður í fyrstu deildina á síðasta tímabili.

Styrmir lék virkilega vel með Skagaliðinu en hann lék alla 22 leikina í deildinni og skoraði 11 stig að meðaltali í leik. Ármann var nýliði á síðasta tímabili en liðið hélt sér uppi í deildinni með frábærri frammistöðu eftir áramót.

„Við erum mjög ánægð með að fá Styrmi til liðs við okkur. Hann hefur sýnt að hann getur látið til sín taka í Bónus deildinni og við teljum að Ár­mann sé rétti staðurinn fyrir hann til að halda áfram að vaxa sem leik­maður. Við Ár­menningar vitum líka að körfu­boltatíma­bilið er ekki stuttur sprettur, heldur meira í líkingu við Vasagönguna sænsku — það þarf þolin­mæði, út­hald og rétt hugar­far alla leið. Við höfum trú á að Styrmir verði mikilvægur hluti af því sem þarf í þá veg­ferð.“ segir Steinar Kal­dal þjálfari liðsins.

Frá handsölun samningsins í LaugardalshöllMynd: Ármann

Styrmir segist spenntur fyrir nýju verkefni í Laugardalnum. 

„Þetta er frábært tækifæri fyrir mig að þróast sem leikmaður og taka þátt í öflugu starfi félagsins. Ég hlakka mikið til komandi tímabils!“

Fréttatilkynning Ármanns í heild sinni: 

Besti ungi leik­maðurinn til Ár­manns

Körfu­knatt­leiks­deild Ár­manns hefur samið við Styrmi Jónas­son um að ganga til liðs við félagið og leika með liðinu í Bónus deild karla á komandi tíma­bili.

Styrmir er tvítugur bak­vörður sem kemur eftir öflugt tíma­bil með ÍA þar sem hann vakti verðskuldaða at­hygli fyrir leik sinn. Hann lék alla 22 leiki ÍA í Bónus deildinni á síðasta tíma­bili, spilaði stórt hlut­verk í liðinu og skoraði að meðaltali 11 stig í leik. Í lok tíma­bilsins var Styrmir valinn besti ungi leik­maður Bónus deildar karla, sem undir­strikar hversu stórt skref hann tók á sínu fyrsta tíma­bili í efstu deild.

Styrmir er upp­alinn Skagamaður og hefur undan­farin ár byggt upp orð­spor sem einn af efni­legustu leik­mönnum landsins. Hann er fjöl­hæfur leik­maður sem getur leyst fleiri en eina stöðu og býr yfir eigin­leikum sem falla vel að þeim leikstíl og þeirri stefnu sem Ár­mann vill vinna eftir. Hann hefur einnig komið við sögu með yngri lands­liðum Ís­lands, meðal annars á FIBA U20 EuroBa­sket, og kemur því með mikilvæga reynslu þrátt fyrir ungan aldur.

Koma Styrmis er stórt skref fyrir Ár­mann þegar liðið undir­býr sig fyrir krefjandi verk­efni í Bónus deildinni. Félagið hefur lagt áherslu á að styrkja leik­manna­hópinn með ungum metnaðar­fullum, sem vilja taka næsta skref í sínum ferli. Styrmir fellur vel að þeirri mynd og er leik­maður sem við bindum miklar vonir við til framtíðar.

„Við erum mjög ánægð með að fá Styrmi til liðs við okkur. Hann hefur sýnt að hann getur látið til sín taka í Bónus deildinni og við teljum að Ár­mann sé rétti staðurinn fyrir hann til að halda áfram að vaxa sem leik­maður. Við Ár­menningar vitum líka að körfu­boltatíma­bilið er ekki stuttur sprettur, heldur meira í líkingu við Vasagönguna sænsku — það þarf þolin­mæði, út­hald og rétt hugar­far alla leið. Við höfum trú á að Styrmir verði mikilvægur hluti af því sem þarf í þá veg­ferð.“ segir Steinar Kal­dal þjálfari liðsins.

Styrmir segist spenntur fyrir nýju verk­efni í Laugar­dalnum.

„Ég er mjög spenntur að vera kominn í Ár­mann. Þetta er frábært tækifæri fyrir mig að þróast sem leik­mann og taka þátt í öflugu starfi félagsins. Ég hlakka mikið til komandi tíma­bils! Áfram Ár­mann“

Ár­mann býður Styrmi hjartan­lega vel­kominn í félagið og hlakkar til að sjá hann í búningi félagsins á komandi tíma­bili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×