Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Sunna Sæmundsdóttir skrifar 16. júní 2026 12:37 Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar. vísir/Vilhelm Gert er ráð fyrir að þingið ljúki störfum fyrir sumarfrí á föstudag. Þingflokksformaður Viðreisnar telur samstarfið við stjórnarandstöðu hafa gengið mun betur en síðasta vor en segir þó miður að ekki hafi náðst að afgreiða frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi. Umræða um þrjú þingmál stjórnarandstöðunnar verður tekin síðar í vikunni. „
Gærdagurinn gekk vel og það er stefnt að því að klára í dag nokkur mál og svo rúllar dagskráin eitthvað fram eftir kvöldi. Ég geri svona frekar ráð fyrir því, nema eitthvað óvænt komi upp, að við ættum að geta klárað þetta á föstudaginn og það er það sem við erum öll að stefna að,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar. Fjármálaáætlun var afgreidd í gær og atkvæðagreiðslur um fjölda mála eru nú fram undan. Í dag fer fram meðal annars fram umræða um hina nýju stofnun atvinnuveganna sem felur í sér sameiningu Matvælastofnunnar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. „Það er mikið hagræðingarmál sem skiptir okkur í Viðreisn talsvert miklu máli. Okkur finnst svolítið leiðinlegt að það skyldi ekki hafa náðst að klára lagareldið, að við skyldum ekki hafa náð saman um það hérna í þinginu. Það er svona það sem er verra en það er margt gott búið að fara í gegn,“ segir Sigmar. Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar.Vísir/Vilhelm Umræða um þrjú þingmál stjórnarandstöðunnar verður tekin í þingsal á fimmtudag eða föstudag. Þar undir er meðal annars þingsályktunartillaga Höllu Hrundar Logadóttur, þingmanns Framsóknar, þar sem lagt er til að skipaður verði sérfræðihópur þvert á ráðuneyti sem verði falið að útfæra breytinar á lögum sem miða að því að takmarka jarðarkaup erlendra aðila hér á landi. Mál Miðflokksins er frumvarp Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanns flokksins, sem varðar gildistíma ökuskírteina. Þar er lagt til að fólk yfir sextugu þurfi ekki að endurnýja skírteinin eins oft og núgildandi lög gera ráð fyrir. Sigmar telur afköstin nokkuð góð á þessum þingvetri. „Mér finnst þessi þingvetur gjörólíkur vorinu í fyrra. Okkur hefur gengið miklu betur að starfa saman, stjórn og stjórnarandstöðu og það eru miklu fleiri mál að fara í gegn núna. Ég held að hafi veturinn kennt okkur það að við getum alveg unnið betur saman miðað við það sem birtist kannski í veiðigjaldaumræðunni síðasta vor og mér finnst það líka bara vera uppskeran.“
Alþingi Viðreisn Framsóknarflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Fleiri fréttir Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Sjá meira