Við erum orðin Afríka: Hvernig íslenska elítan rændi þjóðinni Sigurður Sigurðsson skrifar 17. júní 2026 06:01 Hugsum okkur ríki þar sem náttúruauðlindir þjóðarinnar eru gefnar örfáum fjölskyldum. Ríki þar sem þessar sömu fjölskyldur nota þennan gríðarlega auð til að kaupa upp fjölmiðla, banka og fasteignafélög, og þar sem ungt fólk á litla sem enga möguleika á að stofna heimili vegna þess að allt kerfið er skipulagt og smíðað til þess eins að þjóna þessum fámenna hópi. Ef við hreyðum þessa lýsingu án þess að þekkja samhengið, myndum við líklegast halda að verið væri að lýsa Nígeríu undir olíuherrunum, Rússlandi Pútins, eða rabiata-spillingunni í Kongó á dögum Mobutus. En svo er ekki. Við erum að lýsa Íslandi í dag. Og það er löngu kominn tími til að við kölluðum þetta ástand sínu rétta nafni. Kleptókrati byrjar alltaf á „faglegum“ útskýringum Engin spillt ríkisstjórn í sögunni hefur stigið fram og sagt hreinskilnislega: „Við ætlum að gefa elítunni auðlindir þjóðarinnar.“ Kleptokrati – það er ríki þar sem pólitísk völd eru skipulega notuð til auðgunnar á kostnað almennings – er nánast undantekningarlaust réttlætt með háværum orðum um hagkvæmni, sérfræðiþekkingu, stöðugleika og alþjóðlega samkeppnishæfni. Nákvæmlega þetta gerðist á Íslandi þegar kvótakerfið var innleitt í lok áttunda og byrjun níunda áratugarins. Þá var þjóðinni talin trú um að þetta væri tímabundin, breytileg ráðstöfun til að vernda fiskistofna. Því var lofað að úthlutun skyldi fara eftir sögulegum veiðum og að þetta væri vísindalegt og skynsamlegt. En hvað gerðist í raun þegar á hólminn var komið? Ríkið færði örfáum fjölskyldum og fyrirtækjum varanlegan, ævarandi eignarrétt yfir sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar – án þess að þjóðin fengi nokkurn tímann að samþykkja það né að fá sanngjarnt gjald í staðinn. Þessi sameiginlegu réttindi þjóðarinnar mátti skyndilega selja, leigja á okurprís og veðsetja í bönkum fyrir einkagróða. Og þeir sem fengu þau voru í mörgum tilvikum alls ekki duglegustu sjómennirnir, heldur þeir sem stóðu næst flokksgæðingum og valdakerfinu á réttum tíma. Þetta er nákvæmlega sama uppskriftin og notuð hefur verið til að mynda ofurríkar elítur úr rændum ríkisauðlindum í vanþróuðustu ríkjum Afríku. Afleiðingarnar eru ekki slys – þær eru kerfislægar Talsmenn kerfisins halda áfram að dæla út áróðri um að kvótakerfið sé „einstakt og frábært“. Fiskurinn sé betri, bátarnir stærri og útflutningurinn meiri. En þessar glansandi tölur segja okkur ekki neitt um það hverjir fá arðinn af þessari framleiðsluaukningu. Það eru nefnilega ekki sjómennirnir sem standa vaktina í brælunni. Það eru ekki sjávarþorpin sem eiga allt sitt undir fisknum. Það eru eingöngu þeir sem eiga kvótann á tölvublöðum í Reykjavík og Garðabæ. Samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands og rannsóknum óháðra hagfræðinga hefur hlutfall launa af vergri landsframleiðslu í sjávarútvegi minnkað jafnt og þétt á sama tíma og hagnaður eigendanna hefur vaxið upp úr öllu valdi. Þorpin við sjávarsíðuna, sem reistu þetta samfélag upp úr fátækt á tuttugustu öld, eru mörg hver að hrynja eða breytast í tómar skeljar. Ungir Íslendingar á landsbyggðinni eiga enga framtíð í sinni heimabyggð nema þeir séu afkomendur réttrar ættar. Þetta er ekki óheppileg tilviljun; þetta er kerfislæg niðurstaða af pólitísku vali elítunnar. Auðurinn streymir upp, lífsbjörgin streymir niður, og á milli sitja pólitíkusar sem mæta í sjónvarpssal og dásama hagvöxtinn. Hverfandi lýðræði og siðblinda fjölmiðla Í heilbrigðu lýðræðissamfélagi eiga fjölmiðlar að vera sjálfstæðir og starfa sem varðhundar almennings. Á Íslandi er verulegur hluti helstu fjölmiðla beint eða óbeint í eigu eða undir hælnum á sömu hagsmunaaðilum og njóta mestu forréttindanna í kvótakerfinu. Málsgögn elítunnar keppast við að lýsa yfir furðu sinni á því að nokkur skuli setja út á þetta einstaka og frábæra eignaupptökukerfi þeirra. Þegar þjóð getur ekki lengur fengið hlutlægar og heiðarlegar upplýsingar um eigin auðæfi í eigin fjölmiðlum, þá er lýðræðið orðið fáránleg leikmynd. Það blasir við að forystan í þessum miðlum og valdastofnunum er bókstaflega ekki lengur með fullu viti – hún er svo gegnumsýrð af eigin áróðri og valdahroka að siðferðisvitundin er algjörlega ónýt. Fasteignamarkaðurinn sem blóðvöllur Kvótakerfið er þekktasta dæmið en spillingarmynstrið og smitar út í allt. Á fasteignamarkaðnum sjáum við sömu óhugnanlegu þróunina. Lífeyrissjóðirnir, sem eiga að vera verndarsjóðir almennings, hafa ráðist inn á fasteignamarkaðinn sem keppinautar þess sama vinnandi fólks sem á peningana í sjóðunum. Á sama tíma notar útgerðarelítan ofurauð sinn – sem hún fær í evrum og dollurum – til að kaupa upp fasteignafélög og lúxusvillur. Þeir geyma fjármuni sína erlendis en kaupa alla þjónustu í krónuhagkerfinu á hálfvirði. Á meðan situr vinnandi almenningur fastur í gildru Seðlabankans. Verðbólga og okurvextir halda heilli þjóð í skefjum og gíslingu. Ungt fólk á ekki lengur raunhæfan möguleika á að kaupa húsnæði eða stofna heimili án þess að eiga ríka aðstandendur. Við erum komin á botninn og getum varla sokkið dýpra. Það þarf uppskurð og uppgjör Við höfum leyft okkur að vera svikin af fágaðri framsetningu. Þegar ránskerfi er klætt í hátíðlegt orðalag hagfræðinnar, þegar það er varið af siðlausum stjórnmálamönnum, og þegar þeir sem gagnrýna það eru útmálaðir sem vanvitar sem skilji ekki efnahagsmál – þá er auðvelt að missa sjónar á heildarmyndinni. Er þetta virkilega hægt í samfélagi sem kennir sig við kristin gildi og norræna velferð? Svarið er nei. Það er ekkert norrænt við þetta. Þetta er frumstætt og heiðið kleptókrati í frjálsræðisbúningi. Það þarf að hundahreinsa þetta kerfi og elítuna sem því stýrir. Það þarf að láta alla þessa rotnu hugmyndafræði og siðleysi laxera út úr íslensku samfélagi í eitt skipti fyrir öll. Við þurfum ekki tæknilegar málamiðlanir eða ný nefndarálit; við þurfum róttækan uppskurð og allsherjar siðferðislegt uppgjör. Þann 29. ágúst næstkomandi gefst þjóðinni tækifæri til að brjóta þessa fákeppnisblokk á bak aftur. Við skulum mæta elítunni með sannleikann að vopni, afnema þessa spilltu lénshætti og tryggja að börnin okkar og barnabörn sem eiga að erfa þetta land, fái að alast upp í frjálsu, heilbrigðu og réttlátu samfélagi, byggt á siðferðisvitund og kristnu hugarfari en ekki bellibrögðum og svikum. Sannleikurinn mun sigra, ef við þorum að segja hann upphátt. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um bætt samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar