Eftir mikinn vöxt er líklegt að það verði pressa á kostnaðarstýringu hjá Kviku
Góðar líkur eru taldar á að Kviku muni takast að ná markmiði sínu um tuttugu prósenta arðsemi á efnislegt eigið fé samhliða vaxtaáformum lánabókarinnar, bestun efnahagsreiknings og sterkri kostnaðarstýringu, samkvæmt nýrri greiningu. Fjárfestum er ráðlagt að bæta við sig bréfum í bankanum.
Tengdar fréttir
Arðsemi Kviku nálgast markmið með væntanlegri stórri arðgreiðslu
Afkoma Kviku batnaði nokkuð á fyrsta fjórðungi, einkum drifin áfram af auknum vaxtatekjum samhliða kröftugum lánavexti í Bretlandi og lægri fjármagnskostnaði, og að teknu tilliti til væntanlegrar stórrar arðgreiðslu til hluthafa er bankinn að nálgast markmið sitt um tuttugu prósenta arðsemi. Bankastjóri Kviku segir mikinn samdrátt í veltu á hlutabréfamarkaði vera „áhyggjuefni“ og þá héldu lífeyrissjóðir áfram að taka eignir sína úr stýringu bankans.
Eftirspurnin fór „langt fram úr“ áætlunum með innkomu Kviku á íbúðalánamarkað
Sókn Kviku inn á íbúðalánamarkaðinn hefur farið fram úr björtustu vonum, að sögn bankastjórans, en á rétt ríflega einum mánuði nema þau útlán bankans samtals um tuttugu milljörðum, vel umfram vaxtarmarkmið bankans fyrir árið í heild sinni. Til að tempra vöxtinn, sem hefur einkum verið vegna endurfjármögnunar, hefur bankinn núna hækkað lítillega vextina á nýjum breytilegum óverðtryggðum lánum en líklegt er viðmið um vægi íbúðalána af heildarlánasafni Kviku verði eitthvað hærra en áður hefur verið gefið út.