Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar 11. júní 2026 09:02 Vestmannaeyjabær hefur boðið upp á fjölbreytt sumarstörf fyrir ungmenni, ekki síst í vinnuskólanum þar sem nemendur í 7.–10. bekk fá sitt fyrsta tækifæri til að stíga inn á vinnumarkaðinn. Þar læra þau ábyrgð, samvinnu og mikilvægi þess að leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið. Í ár sóttu 54 börn fædd 2013, og eru í 7. bekk, um starf í vinnuskólanum hjá Vestmannaeyjabæ. Störfin eru viðeigandi fyrir aldur, þau raka gras og tína rusl, vinnutíminn er frá 9:00 til 12:00 í fjórar vikur. Staðan er hins vegar sú að aðeins 20 þessara barna uppfylla „aldursskilyrði“ við upphaf starfstímabils 6. júlí. Hin 36, sem eru 12 ára og verða 13 ára síðar á árinu, mega samkvæmt gildandi reglum ekki vinna. Það á að mismuna börnum eftir afmælisdegi samkvæmt þessu. Þetta þýðir í reynd að við þurfum að hafna stórum hópi barna sem eru tilbúin, viljug og hæf til að taka þátt í starfinu vegna þess eins að þau ná ekki 13 ára aldri á tilteknum degi í júlí. Vinnueftirlitið hefur sagt skýrt að ekki er svigrúm til að víkja frá þessum reglum og að eftirlit verði haft með framkvæmd þeirra og stjórnvaldssektum beitt ef út af bregður. Sem sveitarfélagi ber okkur að fara að lögum og reglum, hvort sem okkur líkar betur eða verr. En eftir situr spurningin: Hvert erum við komin þegar börn að verða 13 ára mega ekki raka gras eða tína rusl í 3 klukkutíma á dag í 4 vikur í skipulögðu og öruggu umhverfi vinnuskóla? Þetta snýst ekki aðeins um lagatúlkun heldur líka um skynsemi og samhengi. Um er að ræða létt störf, hluta úr degi, undir handleiðslu. Þetta eru verkefni sem áður þóttu eðlileg og æskileg sem fyrstu skref til að kynna stálpuðum krökkum vinnulífið. Afleiðingin er sú að við þurfum nú að hafa samband við foreldra 34 barna og tilkynna þeim að börnin þeirra fái ekki að taka þátt; ekki vegna áhugaleysis eða skorts á störfum, heldur vegna ‘’rangra’’ afmælisdaga. Bekkjarsystkini þeirra sem eiga afmæli nokkrum dögum fyrr fá hinsvegar að vera með. Fjölskyldu- og tómstundaráð fjallaði um málið í gær og erindi verður sent til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins með ósk um endurskoðun á túlkun á aldursviðmiðum. Þangað til stöndum við frammi fyrir því að útskýra fyrir börnum og foreldrum að viljinn sé til staðar, en regluverkið standi í vegi. „Computer says no“ Gjörið svo vel að laga þetta! Höfundur er bæjarstjóri Vestmannaeyja Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íris Róbertsdóttir Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar