Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Birgir Olgeirsson skrifar 10. júní 2026 11:06 Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp. Vísir Hopp hefur innleitt nýja lausn í appi sínu sem gerir notendum kleift að auðkenna sig með rafrænu ökuskírteini þegar þeir skrá sig fyrir deilibílaþjónustu fyrirtækisins.
Samkvæmt tilkynningu frá Hopp er fyrirtækið fyrst á Íslandi til að samþykkja rafræn ökuskírteini sem hluta af skráningar- og auðkenningarferli notenda. Með breytingunni þurfa notendur ekki lengur að hlaða upp myndum af hefðbundnu ökuskírteini eða fara í gegnum lengra staðfestingarferli. Þess í stað geta þeir auðkennt sig beint í appinu og fengið aðgang að deilibílum Hopp á skemmri tíma. „Við erum gríðarlega stolt af því að vera fyrst á Íslandi til að innleiða þessa lausn. Markmið okkar hefur alltaf verið að gera samgöngur einfaldari, aðgengilegri og snjallari,“ segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur, í tilkynningunni. Hún segir rafræn ökuskírteini gera notendaupplifunina einfaldari og hnökralausari. Hopp segir innleiðinguna lið í áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu fyrirtækisins. Lausnin eigi bæði að einfalda aðgengi að deilibílum og gera staðfestingu notenda öruggari og skilvirkari. Deilibílar Hopp hafa verið í boði sem sveigjanlegur valkostur við einkabílinn. Með nýju lausninni segir fyrirtækið að notendur sem uppfylla skilyrði geti nú auðkennt sig í appinu og hafið notkun á örfáum mínútum. Hopp rekur 105 deilibíla en þessi þjónusta hefur vaxið jafnt og þétt síðan fyrirtækið kynnti hana til leiks fyrir þremur árum en þá voru þrír deilibílar í boði. Kristín Hrefna segir umgengni um þessa deilibíla með ágætum og Hopp þrífi bílana reglulega. En um þá gilda reglur sem þarf að fylgja annars eru leigutakar sektaðir. Ef þeir skilja rusl eftir í bílnum eru þeir sektaðir og ef einhver kemur að bíl þar sem umgengnin er ekki eftir reglum getur viðkomandi tilkynnt það til Hopp og fyrri leigutaki fær sekt.
Samgöngumál Stafræn þróun Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira