Innlent

Þyrlan kölluð út vegna bílveltu

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Mynd frá 2019 þar sem þyrla kemur til baka með farþega úr rútuslysi í Öræfum.
Mynd frá 2019 þar sem þyrla kemur til baka með farþega úr rútuslysi í Öræfum. Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út í morgun eftir tilkynningu um umferðarslys í Öræfum. Fyrstar á vettvang voru björgunarsveitir.

Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um bílveltu við Fagurhólsmýri í Öræfum upp úr klukkan tíu í morgun. Tvennt var í bílnum og voru sjúkraflutningabílar ræstir út bæði frá Höfn og Kirkjubæjarklaustri.

Ekki er vitað um líðan hinna slösuðu að svo stöddu. Þá gat lögreglan á Suðurlandi ekkert staðfest um þjóðerni þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×