Körfubolti

Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammi­stöðu

Andri Broddason skrifar
Tryggvi Snær Hlinason spilaði flottan leik á móti góðu liði Valencia en þarf að sætta sig við tap
Tryggvi Snær Hlinason spilaði flottan leik á móti góðu liði Valencia en þarf að sætta sig við tap getty/Marcin Golba

Tryggvi Snær Hlinason er dottinn úr leik í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Félagar hans í Bilbao Basket steinlágu fyrir Valencia í öðrum leik liðanna en það þarf að vinna tvo leiki í viðureigninni til að komast áfram í úrslitakeppninni.

Bilbao Basket tók á móti Valencia í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Fyrsti leikur liðanna endaði með minnsta mun en Valencia bar yfirhöndina 83-80. Það var því ljóst fyrir leik kvöldsins að Tryggvi og félagar þurftu á sigri að halda til þess að detta ekki úr leik.

Strax í byrjun sást að þetta væri erfiður róður fyrir Bilbao Basket þar sem Valencia mætti ákveðið til leiks. Í hálfleik leiddi Valencia með tíu stigum þar sem staðan var 47-37.

Lið Tryggva þurfti á sterkri byrjun í seinni hálfleik að halda til þess að missa ekki Valencia fram úr sér en hið öfuga gerðist. Bilbao Basket mætti einfaldlega ekki til leiks í þriðja leikhluta og skoraði liðið aðeins tólf stig í öllum leikhlutanum.

Í fjórða leikhluta batnaði frammistaða Bilbao Basket töluvert en það var einfaldlega of lítið, of seint og leikurinn endaði með sigri Valencia 88-71.

Tryggvi var aftakamestur í sínu liði þar sem hann skoraði tíu stig og tók tíu fráköst. Því miður voru liðsfélagar hans ekki að gera honum neinn greiða og var frammistaða annarra leikmanna liðsins döpur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×