„Siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar“ Jakob Bjarnar skrifar 4. júní 2026 11:44 Sjálfstæðismenn eru æfir vegna útleggingar Daða Más fjármálaráðherra á skýrslu um krónuna. Þeir telja hann vilja hafa áhrif á komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB sem fram fer 29. ágúst. Hildur Sverrisdóttir spurði Kristrúnu hvort orð Daða stangist á við siðareglur ráðherra? vísir/vilhelm/anton brink Sjálfstæðismenn eru æfir vegna orða Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra um nýja skýrslu um íslensku krónuna. Þeir vilja meina að með orðum sínum hafi hann brotið gegn siðareglum ríkisstjórnarinnar og látið Evrópublæti hlaupa með sig í gönur.
Hildur Sverrisdóttir þingmaður saumaði að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma nú fyrir stundu og gerði þetta að umfjöllunarefni. Til upprifjunar sagði Daði Már skýrsluna leiða í ljós að hún gæti ekki staðið undir einni helstu klassísku röksemdinni fyrir sjálfstæðum gjaldmiðli: að sveigjanlegt gengi dempi áföll og auðveldi aðlögun hagkerfisins. Í Bítinu á Bylgjunni sagði hann niðurstöðuna afdráttarlausa að þessu leyti. Að sögn Daða Más bendir skýrslan til þess að ábatinn af sveigjanlegu gengi sé takmarkaður í íslensku hagkerfi. Ástæðan sé meðal annars sú að Ísland flytji nær allt inn og hafi því lítið svigrúm til að bregðast við gengisfalli með aukinni innlendri framleiðslu í stað innflutnings. Mikil upplýsingaóreiða frá ríkisstjórninni sjálfri Morgunblaðið hefur hamast í málinu og Sjálfstæðismenn telja einsýnt að hér sé um upplýsingaóreiðu af hálfu ríkisstjórnarinnar sem svo stangast á við siðareglur ráðherra sem samþykktar voru í ríkisstjórn í mars 2025. Hildur Sverrisdóttir tók í það minnsta þann snúning á málið í fyrirspurnartíma á þinginu. Hún sagði að í aðdraganda mikilvægrar atkvæðagreiðslu 29. ágúst, um hvort þjóðin vilji að áfram verði haldið með aðildarviðræður við ESB, hefði ríkisstjórninni verið tíðrætt um ógnina af upplýsingaóreiðu. „Það er vel en með ólíkindum er hversu mikil upplýsingaóreiða stafar frá ríkisstjórninni sjálfri,“ sagði Hildur. Hún sagði eitt þeirra atriða sem hefðu ekkert með þetta að gera væri viljinn til að taka upp evru og nefndi hún áðurnefnda skýrslu til dæmis. Hildur vildi meina að niðurstöður skýrslunnar væru af hálfu Daða orðaðar meira afgerandi en segir í sjálfri skýrslunni. Og Hildur dró af þessu tilefni upp siðareglurnar og las: b. Ráðherra leggur sig fram um að gera upplýsingar aðgengilegar í samræmi við lög og almenn viðmið og hefur frumkvæði að birtingu upplýsinga sem eru í almannaþágu. Hann beitir sér fyrir því að upplýsingum sé miðlað af nákvæmni, heilindum og með skýrum hætti. c. Ráðherra hefur frumkvæði að því að leiðrétta, eins fljótt og auðið er, rangar eða villandi upplýsingar, sem og hvers kyns misskilning er varðar málefni sem heyrir undir ráðherra. Að Daði Már hafi brotið siðareglur ríkisstjórnarinnar Þá kom að spurningunni: „Hvernig stenst kynning Stjórnarráðsins á þessari mikilvægu skýrslu siðareglurnar?“ spurði Hildur forsætisráðherra. Hildur tók snúning á Evrópuumræðunni í óundirbúnum fyrirspurnum á þinginu, hún telur víst að Daði Már fjármálaráðherra hafi gengið á svig við siðareglur ríkisstjórnarinnar með orðum sínum um skýrslu um íslensku krónuna.vísir/anton brink Kristrún sagðist hafa heyrt þessa gagnrýni og benti á að það hefði ekki verið verkefni skýrsluhöfunda að gera tæmandi úttekt á krónunni og áhrifum hennar á efnahagslífið. Þetta væri einhvers konar hagsmunamat. Skýrslan væri gerð í ert í aðdraganda þess hvort við eigum að fara í samningaviðræður við ESB en ekki hvort við eigum að taka upp evru eftir atkvæðagreiðsluna. Hvort þetta tengist svo siðareglum sagði Kristrún að auðvitað snerist þetta um hvernig hlutirnir eru lagðir upp en það breytti ekki því að það komi skýrt fram að kostnaður við sjálfstæðan gjaldmiðil sé verulegur. Fylgt geti gengisfellingar og kostnaður af slíku sem yfir lengri tíma er gríðarlegur kostnaður, viðskiptalegur kostnaður, og hefur þau áhrif í hagkerfinu að ekki er hægt að gera plön til lengri tíma. Þá sé vitað mál og það liggi fyrir að krónan magni upp sveiflur. „Skýrslan er vönduð og traustur grunnur,“ sagði Kristrún en taldi þetta mál ekki snerta siðareglurnar. Ríkisstjórninni ekkert heilagt Hildur lét ekki segja sér þetta tvisvar. Hún sagðist heyra á svörum Kristrúnar að hún tæki ekki undir niðurstöðu fjármálaráðuneytisins og að hún tæki sjálf undir að það væru kostir og gallar við hvoru tveggja. „Það er bara ekki það sem fjármálaráðuneytið sagði og ætli hæstv. forsætisráðherra þurfi kannski að leiðrétta hæstv. fjármálaráðherra eins og er gerð krafa um í c-lið 6. gr. siðareglna,“ sagði Hildur og ítrekaði að gerð væri krafa um að þetta yrði leiðrétt og hún vænti þess að það yrði gert. Hildur spyr hvort ríkisstjórninni sér virkilega ekkert heilagt?vísir/anton brink „Eða á allt að fá að ganga upp í pólitískum tilgangi og pólitískri vegferð ríkisstjórnarinnar, meira að segja siðareglurnar skipti ekki máli? Og talandi um pólitískan tilgang, með leyfi forseta: Ég ætla að fara hérna aðeins í 5. gr. siðareglna þar sem segir að ráðherra skuli gera skýran greinarmun á flokkspólitísku starfi, svo sem í tengslum við kosningar, sem er kannski eitthvað sem hæstv. forsætisráðherra mátti hafa á bak við eyrað á bílaplani Jysk, en látum það liggja á milli hluta hér undir eru eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar. Það segir skýrt í siðareglum ríkisstjórnarinnar að ráðherrar hafi þá skyldu að koma fram með réttar upplýsingar. Ef þær eru villandi óvart eða ekki þá ber að leiðrétta þær. Eru siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar? Þeim er ekkert heilagt.“ Hvernig væri að ræða efni skýrslunnar? Kristrún benti á að fjármálaráðuneytið hefði sagt að líklega væri kostnaðurinn af krónunni að jafnaði meiri en ábatinn. „Þetta er rangtúlkun á þessari fréttatilkynningu, gefur að skilja þegar orð eins og líklega og að jafnaði eru notuð.“ Hún sagði auðvitað svigrúm til túlkana á niðurstöðunum. Kristrún stóð í ströngu í fyrirspurnartíma á þinginu nú fyrir stundu.vísir/vilhelm „Ég hef verið frekar skýr í mínu máli þegar kemur að kostnaði við íslensku krónuna. Ég veit alveg að það eru ákveðnir gallar sem fylgja því að fara inn í fastgengi, sjónarmið fastgengiskerfis, en ég veit líka að það er gríðarlegur kostnaður við núverandi kerfi og það er það sem er varpað fram í þessari skýrslu. Ég held að það færi betur á því að við eyðum tíma í að ræða þá efni skýrslunnar en staka framsetningu þar sem að mínu mati er verið að snúa út úr og gera of mikið úr og býsna langsótt að fara að tengja þetta við siðareglur.“ Kristrún sagði að þeir sem tækju málefnalegan þátt í þessari umræðu gætu lesið sér til gagns: „Það er alls ekki útgangspunktur þessarar fréttatilkynningar að slá einhverju gjörsamlega föstu.“
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Samfylkingin Íslenska krónan Tengdar fréttir Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Kostnaður við íslensku krónuna er verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli, að mati erlends sérfræðingahóps sem fjármála-og efnahagsráðuneytið fól að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Fjármálaráðherra segir skýrsluna sýna að valkostir Íslands séu bara tveir, áframhaldandi ástand eða upptaka evru í gegnum aðild að Evrópusambandinu. 29. maí 2026 14:25 Mest lesið Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Erlent Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Innlent Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Innlent „Við hættum bara að keyra um leið og við förum í símann“ Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Væri frábært ef Landspítalinn vildi reka leikskóla Innlent „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Innlent Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Innlent Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Innlent Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Innlent Fleiri fréttir „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ „Siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar“ Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Lögsækja Reykjavíkurborg Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Ánægja með Höllu eykst Væri frábært ef Landspítalinn vildi reka leikskóla Tveir handteknir vegna líkamsárásar og fleiri í tengslum við rán og þjófnað „Við hættum bara að keyra um leið og við förum í símann“ Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Sjá meira
Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Kostnaður við íslensku krónuna er verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli, að mati erlends sérfræðingahóps sem fjármála-og efnahagsráðuneytið fól að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Fjármálaráðherra segir skýrsluna sýna að valkostir Íslands séu bara tveir, áframhaldandi ástand eða upptaka evru í gegnum aðild að Evrópusambandinu. 29. maí 2026 14:25