Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Árni Sæberg skrifar 3. júní 2026 14:30 Signý tekur við af Jónasi. Silla Páls Signý Magnúsdóttir hefur tekið við sem stjórnarformaður Deloitte á Íslandi. Hún tekur við af Jónasi Gesti Jónassyni sem hefur verið stjórnarformaður félagsins frá 2020.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Jónas muni láta af störfum hjá Deloitte á haustmánuðum en muni áfram starfa fyrir félagið sem utanaðkomandi ráðgjafi, sérstaklega í verkefnum sem tengjast sjávarútvegi og tengdum greinum. Jónas hafi starfað hjá Deloitte frá 1994, sem löggiltur endurskoðandi frá árinu 1999 og meðeigandi frá 2001. Hann hafi gegnt margvíslegum störfum fyrir félagið á þessum tíma, meðal annars sem útibússtjóri á Snæfellsnesi, sviðsstjóri viðskiptalausna og teymisstjóri sjávarútvegsteymis Deloitte. Mikilvægt að reyndur stjórnandi leiði stjórnina Signý hafi fyrst hafið störf hjá Deloitte árið 2006 á endurskoðunarsviði og sem meðeigandi frá 2014. Hún hafi verið fjármálastjóri Sýnar frá 2019 til 2021 en þá komið aftur til starfa hjá Deloitte sem meðeigandi og stjórnarmaður. „Jónas hefur starfað fyrir Deloitte í áratugi og verið í lykilhlutverki við að móta og byggja upp eitt fremsta fyrirtæki á sviði endurskoðunar og ráðgjafar á Íslandi. Ég er afar ánægð að við fáum áfram notið krafta hans og þekkingar sem sjálfstæðs ráðgjafa og þakka honum fyrir hans mikilvæga framlag til Deloitte á Íslandi í gegnum árin. Að sama skapi fagna ég því að Signý taki við stjórnarformennsku í félaginu. Stjórn Deloitte gegnir mikilvægu hlutverki í stefnumörkun félagsins og því afar mikils virði að fá öflugan og reyndan leiðtoga á borð við Signýju til að leiða það starf áfram,“ er haft eftir Lovísu Finnbjörnsdóttur, forstjóra Deloitte á Íslandi. Hluti af fjölskyldunni „Ég hef varið stærstum hluta af mínum ferli hjá Deloitte og lít á vinnustaðinn og samstarfsfólkið sem hluta af fjölskyldu minni. Eftir 32 ára starf hjá félaginu finnst mér tímabært að snúa mér að nýjum verkefnum sem sjálfstæður ráðgjafi og nýta þá áralöngu reynslu úr íslensku atvinnulífi sem ég hef byggt upp hjá Deloitte. Það hefur verið gaman að sjá félagið vaxa og dafna á þessum tíma. Ég geng því afar sáttur og þakklátur frá borði og er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð hjá Deloitte á Íslandi,“ er haft eftir Jónasi Gesti.
Vistaskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira