Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Samúel Karl Ólason skrifar 3. júní 2026 14:00 Samuel Henderson hefur á undanförnum árum sýnt gifurlega og einstaka hæfileka, þó hann sé ungur. Ungur einhverfur strákur í Bandaríkjunum getur hermt nánast fullkomlega eftir fjölda fugla. Samuel Henderson er tólf ára gamall. Auk þess að vera með einhverfu er Samuel einnig með tourette og hafa hæfileikar hans vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum undanfarna daga.
Hann segist geta hermt eftir rúmlega fimmtíu mismunandi tegundum af fuglum og gerir hann það af mikilli nákvæmni. Móðir Samuels deildi nýlega myndbandi af honum á hæfileikakeppni í skólanum á TikTok. Það myndband hefur vakið gífurlega athygli. @diabetic4one Two years after his first ever Talent Show, Samuel came back to where it all started. Some new birds and some of the familiar bird calls this time. It was a farewell to Intermediate school #birder #autism #tourettes #fyp ♬ original sound - Lori, Samuel's mom Þetta er ekki í fyrsta sinn sem frammistaða Samuels á hæfileikakeppni í skólanum vekur athygli. Fyrir rúmu ári heimsótti fréttamaður CBS þennan unga mann og kynnti sér hæfileika hans. Þá sagði Samuel að einhverjir héldu því fram að hann hefði kyngt fuglum og þannig myndaði hann hljóðin. Þegar fréttamaðurinn spurði hvort hann hefði nokkuð kyngt fuglum sagði hann: „Nei, eða jú. Kjúklingum.“ Í umfjöllun CBS frá því í fyrra sagði móðir hans að hún hefði haft miklar áhyggjur af því að Samuel vildi taka þátt í hæfileikakeppni í skólanum fyrir um tveimur árum. Þá óttaðist hún sérstaklega að aðrir krakkar myndu gera grín að honum. Það fór þó ekki svo og komu hæfileikar Samuels krökkunum verulega á óvart og tóku þau honum fagnandi. Áður en fjallað var um hann í CBS hafði Samúel farið í þátt Jennifer Hudson og rætt við hana um þessa hæfileika sína. Þar fékk hann líka að virða fyrir sér raunverulegar uglur og páfagauka og leika hljóðin úr þeim eftir.
Dýr Grín og gaman Fuglar Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Fleiri fréttir Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Sjá meira