Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Birgir Olgeirsson skrifar 3. júní 2026 10:55 Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari. Vísir/Vilhelm Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar í kjaradeilu aðilanna klukkan sjö annað kvöld.
Þetta er fyrsti fundurinn sem er haldinn síðan á föstudag en fundað hafði verið þétt fram að því. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir tímasetningu fundarins að kvöldi tilkomna vegna þess að hreinlega hafi ekki verið unnt að koma mönnum saman til fundar á öðrum tíma en þessum. Á fundinum annað kvöld verður rætt um vinnufyrirkomulag flugmanna hjá Icelandair. Þar takast á hagsmunir félagsins af því að geta nýtt mannafla sinn betur og hagsmunir flugmanna af því að frí þeirra séu virt og vernduð. Markmiðið er að reyna að finna lausn sem gefur Icelandair meira svigrúm í skipulagningu flugs en tryggir um leið að flugmenn geti treyst því að frídagar þeirra verði ekki skertir eða raskaðir með ófyrirsjáanlegum hætti. Inn í deiluna blandast þó önnur málefni sem varða til dæmis svokallaða blautleigu, sem er þegar flugfélag leigir flugvél með áhöfn af öðru flugfélagi. Heimild er fyrir því að grípa til slíks úrræðis í undantekningartilvikum í dag, en deilt er um auknar heimildir til þess. Þá eru einnig fyrirhuguð kaup Icelandair á 49% hlut í Play Europe á Möltu til umræðu og hvaða þýðingu þau hefðu fyrir rekstur Icelandair og störf flugmanna sem tilheyra Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. Hingað til hafa viðræður þessara tveggja aðila, Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna, gengið hægt og deilan lítið þokast áfram.
Icelandair Kjaramál Flug Tengdar fréttir Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost „Ég deili vissulega áhyggjum af þeirri stöðu sem er uppi hjá Icelandair og erfiðum horfum hjá félaginu framundan, sbr. umfjöllun í fjölmiðlum undanfarna daga,” segir Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Gildis, sem er næststærsti hluthafi flugfélagsins Icelandair. 1. júní 2026 15:33 Hækkar verðmatið á Icelandair þótt útlit sé fyrir yfir tíu milljarða rekstrartap Þrátt fyrir að óvissan hafi sjaldan verið meiri í rekstri Icelandair, einkum vegna hækkandi eldsneytisverðs og kjaradeilna við flugmenn, þá er félagið verðmetið á nærri tvöfalt hærra verði en núverandi markaðsgengi í nýrri greiningu. Því er spáð að Icelandair muni skila yfir tíu milljarða króna rekstrartapi á þessu ári en áður var áætlað að afkoman yrði kringum núllið. 1. júní 2026 14:34 Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost „Ég deili vissulega áhyggjum af þeirri stöðu sem er uppi hjá Icelandair og erfiðum horfum hjá félaginu framundan, sbr. umfjöllun í fjölmiðlum undanfarna daga,” segir Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Gildis, sem er næststærsti hluthafi flugfélagsins Icelandair. 1. júní 2026 15:33
Hækkar verðmatið á Icelandair þótt útlit sé fyrir yfir tíu milljarða rekstrartap Þrátt fyrir að óvissan hafi sjaldan verið meiri í rekstri Icelandair, einkum vegna hækkandi eldsneytisverðs og kjaradeilna við flugmenn, þá er félagið verðmetið á nærri tvöfalt hærra verði en núverandi markaðsgengi í nýrri greiningu. Því er spáð að Icelandair muni skila yfir tíu milljarða króna rekstrartapi á þessu ári en áður var áætlað að afkoman yrði kringum núllið. 1. júní 2026 14:34