Líkamsárás á veitingastað í miðborginni og umfangsmikill þjófnaður Freyja Þórisdóttir skrifar 31. maí 2026 18:19 Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í dag. Vísir/Vilhelm Lögreglustöð eitt barst tilkynning um líkamsárás og eignaspjöll á veitingastað í miðborginni í dag en gerandinn var farinn af vettvangi er lögreglu bar að garði. Þá sinnti lögreglustöð þrjú, sem fær tilkynningar um mál í Kópavogi og Breiðholti, útkalli þar sem tveir menn áttu að hafa verið að stela miklu magni þýfis úr matvöruverslun. Rannsókn stendur enn yfir í báðum málum.
Er þetta meðal þess helsta sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fimm í morgun. Alls voru sextíu og sex mál skráð í kerfi lögreglu. Austurbær, Vesturbær, Seltjarnarnes og miðborg Reykjavíkur falla undir lögreglustöð eitt og var á svæðinu kallað eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárásar á veitingastað. Þrátt fyrir að hafa ekki verið á vettvangi við komu lögreglunnar á staðinn eru upplýsingar gerenda á skrá hjá lögreglu. Ökumenn voru stöðvaðir af ýmsum mismunandi ástæðum og þær helstu voru grunur um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis, akstur á nagladekkjum og loks voru að minnsta kosti einu sinni í dag höfð afskipti af ökumanni sem talaði í símann undir stýri. Ein kona var vistuð í fangaklefa vegna þess að hún var að valda ólátum í miðborginni sökum vímuástands. Málin þarfnist bæði frekari rannsóknar Í skráningu lögreglu kemur einnig fram að í kjölfar útkalls vegna umferðarslyss í annaðhvort Kópavogi eða Breiðholti hafi ökumaður verið handtekinn. Hann var grunaður um akstur undir áhrifum lyfja- og/eða fíkniefna. Þá fundust einnig fíkniefni í fórum mannsins og var hann vistaður í fangaklefa vegna málsins. Lögreglumenn á stöð þrjú sem, líkt og fyrr segir, sinnir málum í Kópavogi og Breiðholti var kölluð til vegna meints þjófnaðar í matvöruverslun. Voru tveir menn vistaðir vegna málsins og í dagbók lögreglu kemur fram að um umfangsmikinn þjófnað hafi verið að ræða. Mennirnir voru hvorugur með nokkur skilríki á sér og þarfnast málið, sem og málið sem er reifað hér að ofan, frekari rannsóknar.
Lögreglumál Kópavogur Reykjavík Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira