Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Lovísa Arnardóttir skrifar 31. maí 2026 14:14 Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur er í Borgartúni. Vísir/Vilhelm Skrifstofur Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga verða lokaðar frá klukkan tíu í fyrramálið til klukkan 13 sama dag vegna fundar starfsfólks sem Félag íslenskra náttúrufræðinga, FÍN, hefur boðað til vegna óvissu í greininni.
Í tilkynningu kemur fram að fundurinn sé haldinn með félagsmönnum FÍN sem starfa hjá Heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga vegna þeirrar óvissu sem nú ríkir um framtíð heilbrigðiseftirlitsins, störf starfsfólks og kjör þess, í ljósi lagabreytinga sem eru til meðferðar á Alþingi. Þar kemur einnig fram að í fyrirliggjandi frumvörpum ríkisstjórnarinnar séu kynntar umfangsmiklar breytingar á skipulagi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. „Verði þau samþykkt munu verkefni sem nú eru sinnt af heilbrigðisnefndum og heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga færast til ríkisstofnana. Starfsfólk heilbrigðiseftirlits hefur hins vegar enn ekki fengið fullnægjandi upplýsingar um hvernig breytingarnar verða framkvæmdar, hvaða störf verða til, hvar þau verða staðsett eða hvaða áhrif breytingarnar munu hafa á kjör og starfsaðstæður,“ segir í tilkynningunni. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga sinnir lögbundnu eftirliti með matvælum, hollustuháttum, mengunarvörnum og öðrum þáttum sem varða öryggi, lýðheilsu og umhverfi almennings. Í tilkynningu segir að um sé að ræða sérhæfð störf þar sem mikil fagþekking, reynsla og staðþekking hafi byggst upp á löngum tíma. „Með fundinum vill Félag íslenskra náttúrufræðinga skapa vettvang fyrir starfsfólk til að fara yfir stöðu málsins, réttindi sín og þá óvissu sem uppi er. Jafnframt er mikilvægt að stjórnvöld geri starfsfólki heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga skýra grein fyrir því hvernig staðið verði að breytingunum og hvaða áhrif þær muni hafa á störf, kjör, starfsstöðvar og framtíð sérfræðistarfa um land allt,“ segir að lokum.
Heilbrigðiseftirlit Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira