Gullhúðun, yfirheyrslur og sektir í boði Alþingis Benedikt S. Benediktsson, Bjarni Benediktsson og Ólafur Stephensen skrifa 27. maí 2026 18:00 Grái listinn Eins og margir muna var Ísland sett á gráan lista FATF-aðgerðarhóps gegn peningaþvætti árið 2018. Við svo búið gripu stjórnvöld til ýmissa úrræða í því skyni að ná Íslandi af listanum enda gátu áhrif af verunni þar haft neikvæð efnahagsleg áhrif. Innleidd var ESB-tilskipun um viðfangsefnið og eftirlit sett í hendur Skattsins og Seðlabanka Íslands. Markmið tilskipunarinnar var mikilvægt, að vernda fjármálakerfið gegn misnotkun í þágu peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka. Það er óhætt að halda því fram að fáir ef nokkrir leggist gegn því að fjármálakerfið og þjóðfélagið njóti verndar gegn glæpastarfsemi. Atvinnulífið styður slíka viðleitni heilshugar. Aðkoma Alþingis Þáverandi ríkisstjórn lagði sitt af mörkum til að treysta regluverk og eftirlit hér á landi. Alþingi gegndi einnig lykilhlutverki því hér þurfti að breyta lögum svo Ísland kæmist af gráa listanum. Margir, þ. á m. atvinnulífið, sýndu viðbrögðunum ríkan skilning. En þegar hratt er unnið verða stundum mistök. Þegar Alþingi fékkst við lagabreytingar læddust með óþörf og íþyngjandi atriði. Þannig var því komið til leiðar að bifreiðasalar og bifreiðaumboð þyrftu að ráðast í djúpa rannsókn á kaupendum bifreiða og skrá í kerfi ítarlegar upplýsingar um hverjir viðskiptavinirnir væru og hvernig þeir hefðu eignast peninga til kaupanna. Þetta er þó ekki gert í öðrum ríkjum. Standi söluaðilarnir ekki rétt að rannsókninni eru þeir sektaðir eins og glæpamenn væru. Boðaðar sektir hafa numið hátt í 84 milljónum króna hingað til. Til að standast settar kröfur þurfa söluaðilarnir að byggja upp verklag og kaupa aðgang að dýrum kerfum og þjálfa og endurþjálfa starfsfólk til að yfirheyra viðskiptavini með réttum hætti. Líkur eru á að kostnaðurinn nemi hátt í hálfum milljarði króna á ári hverju og hann ratar út í verðlag. Alþingi virðist hafa komist á bragðið, því að í viðleitni til að taka á smálánafyrirtækjum nokkru seinna var sleggju beitt. Þeim var gert að sinna sambærilegu eftirliti og bílgreininni gagnvart sínum viðskiptavinum. Vandinn er sá að útfærslan er svo víðtæk að nú þurfa kaupendur raftækja, landbúnaðarvéla o.fl. einnig að sæta yfirheyrslu af hálfu sölufólks sem skráir allt í kerfin. Ekki þarf að fjölyrða um þann kostnað og fyrirhöfn sem fylgir fyrir fyrirtækin og viðskiptavini þeirra. Vinna gegn gullhúðun efst á blaði Þegar ríkisstjórnin var mynduð var gerður samningur sem er kallaður stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar. Eitt markmiða samningsins er að einfalda stjórnsýslu og hagræða í ríkisrekstri en þar er tekið fram að meðal lykilaðgerða ríkisstjórnarinnar verði að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir. Eins og margir þekkja var eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar að ganga til samráðs við þjóðina og kalla eftir tillögum um einföldun og hagræðingu. Starfshópur forsætisráðherra skilaði fjölda tillagna sem voru m.a. unnar upp úr hugmyndum þjóðarinnar og ríkisaðila. Meðal þeirra eru tillögur um umbætur á regluverki og þar er vinna gegn gullhúðun efst á blaði. Hvað gerist þegar blaðinu sleppir Ríkisstjórnin hefur horft í ýmsar áttir í viðleitni til einföldunar og hagræðingar, t.d. að sameina stofnanir, samhæfa eftirlit, gera breytingar á jafnlaunavottun, draga úr gullhúðun sem finna má í lögum um ársreikninga og er það vel. Næg eru verkefnin og á því má hafa skilning. Hins vegar er erfitt að skilja hvers vegna jafn einföld aðgerð og að afmá fyrri verk Alþingis, sem leitt hafa til óþarfa yfirheyrslna borgaranna og uppsöfnunar kostnaðar í sölustarfsemi – og er í þokkabót í ósamræmi við kröfur og framkvæmd í öðrum ríkjum – fái engan hljómgrunn. Verður þá að hafa í huga að fastanefnd Alþingis lét með skýrum hætti í ljós að endurskoðun á löggjöfinni væri sérstaklega mikilvæg. Samtalið þarf að eiga Bílgreinasambandið, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnulífsins og SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu óskuðu eftir samtali við dómsmálaráðherra í byrjun þessa árs með það fyrir augum að ræða þessa stöðu. Það er synd að enn hafi ráðherra ekki séð sér fært að taka þátt í því samtali. Höfundar eru Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu og Bílgreinasambandsins, Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Benedikt S. Benediktsson Bjarni Benediktsson Ólafur Stephensen Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar