Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Tómas Arnar Þorláksson skrifar 28. maí 2026 06:31 Hjólhýsabyggðin mun rísa á milli athafnasvæðis Skemmtigarðsins og íbúðabyggðar í Gufunesi. vísir/anton/vilhelm Stefnt er að því að hjólhýsabyggðin sem hefur staðið við Sævarhöfða í tvö ár færist í Gufunes. Reykjavíkurborg og forsvarsmenn óstofnaðs félags, Samtaka hjólabúa, hafa skrifað undir afnotasamning þess efnis. Um er að ræða 3.900 fermetra landspildu í Gufunesi sem er á milli afnotasvæðis Skemmtigarðsins og íbúðabyggðar við Jöfursbás.
Þetta kemur fram í fundargerð borgarráðs frá 16. apríl. Íbúar og forsvarsaðilar fyrirtækja á svæðinu komu af fjöllum þegar að fréttastofa bar undir þau hvernig þeim litist á nýja staðsetningu hjólhýsabyggðarinnar. Hér fyrir neðan má sjá staðsetninguna sem hjólabúar hafa fengið afnot af. Hér má sjá landspilduna sem um ræðir. Til suðurs er Skemmtigarðurinn og til norðurs er íbúðabyggð í Gufunesi.Reykjavíkurborg Borga 202 þúsund krónur á ári fyrir afnot Á fundi borgarráðs þann 16. apríl var lagt til að borgarráð samþykki afnotasamning í nafni fráfarandi borgarstjóra, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, við forsvarsaðila óstofnaðs félags, Samtaka hjólabúa, á landspildu í Gufunesi. Svæðið er við vegstæði Sundabrautar samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkurborgar. Auglýst var eftir nýtingu borgarlands í Gufunesi á vefsíðu borgarinnar þann 24. mars og barst aðeins umsókn frá hjólabúum. Tillagan var samþykkt á fundinum en samningurinn er til tveggja ára með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Leigugjaldið hljóðar upp á 202 þúsund krónur á ári. Ekki grenndarkynnt og engin umsögn frá umhverfis- og skipulagssviði Hildur Björnsdóttir og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, og Einar Þorsteinsson, borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins, sátu hjá við afgreiðslu málsins. Einar lagði fram bókun á fundinum þar sem hann ítrekaði þá stefnu flokksins að tryggja húsnæðisöryggi íbúa án þess að borgin komi upp hjólhýsagarði sem sérstöku húsnæðisúrræði. Hann gagnrýnir jafnframt að ekki hafi verið haft samráð við aðila á svæðinu. „Fyrirsjáanlegt er að fjöldi fólks muni vilja fá aðgang að svæðinu. Eðlilegra væri að þau sem vilja kjósa að búa í hjólhýsum óskuðu eftir og greiddu fyrir langtímastæði á þeim tjaldstæðum sem til boða standa á höfuðborgarsvæðinu. Í umsögn borgarlögmanns er gerð alvarleg athugasemd um að gengið sé til samninga við óstofnað félag og að tilgangur félagsins liggi því ekki fyrir. Þá er óljóst hvernig rekstri hjólhýsagarðsins verði háttað. Þessi ákvörðun hefur ekki verið grenndarkynnt og engin umsögn liggur fyrir frá umhverfis- og skipulagssviði,“ segir í bókun Einars. Rauða doppan sýnir afnotasvæði Samtaka hjólabúa.Reykjavíkurborg Hildur og Ragnhildur lögðu einnig fram bókun þar sem segir að réttara hefði verið að huga að ábendingum í umsögn borgarlögmanns áður en málið var afgreitt. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna lögðu fram svohljóðandi gagnbókun: „Því ber að halda til haga að brugðist var við athugasemdum borgarlögmanns, farið var í auglýsingu og skýrt er tekið fram í samningnum að ekki er um sérleyfissamning að ræða eða heimild til að standa í atvinnustarfsemi eða rekstri.“ Ýmsar aðfinnslur frá borgarlögmanni Í umsögn borgarlögmanns er fundið að því að úthlutunin hafi ekki verið auglýst með fullnægjandi hætti. Enn fremur sé ekki nægilega afmarkað og skilgreint hver heimil notkun svæðisins sé. Ekki nægi að vísa til þess að svæðið sé ætlað undir hjólhýsi. Þá er ítrekað að nauðsynlegt sé að leita umsagnar hjá umhverfis- og skipulagssviði vegna málsins. Ný staðsetning hjólhýsabyggðarinnar var eitt af forgangsatriðum og loforðum fráfarandi meirihluta Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins, Vinstri grænna og Sósíalistaflokksins. Var þar vísað til óviðunandi aðstæðna við Sævarhöfða. Nú virðist landspildan í Gufunesi eiga að efna það loforð. Hér fyrir neðan má sjá kort af svæðinu sem um ræðir.
Hjólhýsabyggð í Reykjavík Borgarstjórn Reykjavík Húsnæðismál Sveitarstjórnarmál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira