Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Árni Sæberg skrifar 22. maí 2026 12:01 Guðmundur Ásgeirsson er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Vísir/Vilhelm Hagsmunasamtök heimilanna hafa beint kvörtun til Persónuverndar yfir gjaldtöku Creditinfo Lánstrausts hf. fyrir aðgang einstaklinga að upplýsingum um eigið lánshæfismat.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Creditinfo hafi löngum boðið einstaklingum aðgang að upplýsingum um lánshæfismat sitt gegn gjaldi en gjaldfrjálst samþykki viðkomandi einstaklingur að deila svokölluðum viðbótarupplýsingum með fyrirtækinu til notkunar við gerð lánshæfismats. Nýlega hafi fyrirtækið gert þá breytingu að nú sé í öllum tilvikum krafist gjalds fyrir aðgang einstaklings að sínu eigin lánshæfismati. Fullt gjald sé nú 2.900 krónur en lægra eða 1.990 krónur ef viðkomandi samþykkir að deila viðbótarupplýsingum með fyrirtækinu, sem annars væri óheimilt að safna og nýta við vinnsluna. „Hagsmunasamtök heimilanna telja gjaldtökuna vera ólögmæta og girða með ólögmætum hætti fyrir að einstaklingar geti greiðlega nýtt sér rétt sinn til aðgangs að persónuupplýsingum sínum, andmæla, leiðréttingar, takmörkunar vinnslu og endurskoðunar á niðurstöðum lánshæfismats. Með því að hnika einstaklingum til að samþykkja aukna vinnslu persónuupplýsinga gegn lægra gjaldi fyrir aðgang að niðurstöðum lánshæfismats sé jafnframt grafið undan vernd persónuupplýsinga með ólögmætum hætti. Samtökin hafa því beint kvörtun yfir þessari gjaldtöku til Persónuverndar.“Að mati samtakanna sé það óforsvaranlegt að fyrirtæki í einokunarstöðu á vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust landsmanna, sem geri sér mat úr þeim upplýsingum, skuli í ofanálag krefja einstaklinga um gjald fyrir aðgang að þeirra eigin persónuupplýsingum og brjóta þannig gegn lögbundnum réttindum þeirra. „Neytendur hafa aldrei verið beðnir um leyfi fyrir því að fjárhagsupplýsingar þeirra séu gerðar að söluvöru og einhvers staðar verður að draga línu í sandinn. Lögbundin réttindi neytenda til aðgangs að þeirra eigin upplýsingum má aldrei gera að féþúfu!“
Persónuvernd Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira