Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Árni Sæberg skrifar 21. maí 2026 13:56 Tómas Guðbjartsson og Andemariam Beyene eftir að aðgerðina umdeildu. vísir/vilhelm Ekkja manns, sem fékk ígræddan plastbarka árið 2011 og lést þrjátíu mánuðum síðar, fór með fullnaðarsigur af hólmi í deilu við ríkið fyrir héraðsdómi í dag.
Þetta segir Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Merhawit Tesfaslase, ekkju Andemariams Teklesenbet Beyene, í samtali við fréttastofu. Héraðsdómur Reykjavíkur hafi viðurkennt bótaskyldu ríkisins vegna tjóns og miska ekkjunnar og þriggja sona hjónanna. Sigurður G. Guðjónsson lögmaður. Í bakrunni er Gestur Gunnarsson lögmaður, sem gætti einnig hagsmuna ekkjunnar.Vísir/Vilhelm Enn eigi eftir að fara yfir hverjar endanlegar fjárkröfur fjölskyldunnar verði og því sé ómögulegt að skjóta á hversu háar bæturnar verða. Þá sé mögulegt að ríkið áfrýji dóminum. Fyrsta skiptið Í stefnu ekkjunnar á hendur ríkinu var rakið hvernig íslenskir læknar sendu hinn krabbameinssjúka Andemariam til Svíþjóðar í aðgerð hjá Paolo Macchiarini. Aðgerð sem átti síðar eftir að draga hann til dauða. Þetta var í fyrsta sinn sem plastbarki var græddur í manneskju. Seinna kom í ljós að Macchiarini hafði ekki fengið leyfi siðanefndar fyrir aðgerðinni og hann dæmdur til fangelsisvistar vegna aðgerðarinnar og tveggja annarra. Tómas sendi Andemariam til Macchiarinis Meðferðarlæknir Andemariam var Tómas Guðbjartsson skurðlæknir. Hann tók einnig þátt í aðgerðinni örlagaríku í Svíþjóð. Í stefnunni sagði að Tómas bæri mesta ábyrgð á því sem kallað er óforsvaranleg læknismeðferð en frá því að aðgerðin var framkvæmd og til dauðadags hefði Andemariam upplifað óbærilegar þjáningar sem og hans nánustu. Hefur fengið afsökunarbeiðni Ekkja Andemariams krafðist sem áður segir viðurkenningar á bótaskyldu ríkisins í málinu en ekki var nefnd tiltekin fjárhæð skaða- og miskabóta. Hann hefði mátt þola ómannúðlega meðferð af hálfu lækna Landspítalans og þegar brotið væri á grundvallarmannréttindum ætti að greiða hærri bætur en leiða mætti af skaðabótalögum. Forstjóri Landspítalans hefur áður beðið ekkjuna afsökunar og lögmaður spítalans beint kröfu um skaðabætur til ríkislögmanns. Íslenska ríkið hafnaði þeirri kröfu hins vegar og því ákvað hún í samráði við lögmenn sína að stefna ríkinu.
Plastbarkamálið Heilbrigðismál Landspítalinn Dómsmál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Sjá meira