Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. maí 2026 15:49 Vignir gaf fólki sem glímir við erfiðar hugsanir góð ráð. Vísir/Sigurjón Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson ræddi opinskátt um sjálfsvígshugsanir sínar og veitti fólki í sömu sporum ráð í myndbandi á samfélagsmiðlum í dag. Hann hvatti fólk til að byrja í líkamsrækt, elta drauma sína, vorkenna sér ekki of mikið og fara út fyrir þægindarammann. Vignir Vatnar er sextándi stórmeistari Íslandssögunnar, tvöfaldur Íslandsmeistari í skák og meðal hundrað bestu skákmanna í heimi. Vignir birti myndband á Instagram-síðu sinni fyrr í dag þar sem hann ræddi um sjálfsvígshugsanir og veitti góð ráð. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Vignir sagði að kveikjan að myndbandinu hafi verið Facebook-grúppan „Börnin sem kerfið brást“ en þar hafi hann rekið augun í sögur af börnum og ungmennum sem styttu sér aldur. „Það fór mjög mikið fyrir hjarta mitt því ég er maður sem reyndi að taka mitt eigið líf. Ég held að mér beri skylda, með mína sögu, að reyna að hjálpa. Ef ég get hjálpað einni manneskju þarna úti sem líður illa, sama á hvaða aldri, þá á ég að tala um þetta,“ sagði hann í myndbandinu. Vignir veitti síðan fjögur ráð og stillti þeim upp eins og hann væri að ráðleggja yngri útgáfu af sjálfum sér þegar hann var á sínum versta stað. „Það er magnað hvað lífið þitt breytist“ „Númer eitt er að byrja í ræktinni, það er það besta sem ég hef gert fyrir bæði líkamlega og andlega heilsu,“ sagði hann í myndbandinu. Hann birti síðan gamla mynd af sér sem var tekin skömmu áður en hann reyndi að stytta sér aldur. Hann hafi skammast sín fyrir sjálfan sig og liðið illa. „Það er magnað hvað lífið þitt breytist, þú bæði byrjar að líta betur út og þér líður betur því þú ert að mæta fyrir sjálfan þig,“ sagði hann og lýsti líkamsræktinni sem eins konar þerapíu. „Ekki vera hræddur við að labba inn og halda að einhver sé að dæma þig. Það er enginn að því,“ sagði hann síðan. Það verði erfitt í fyrstu en síðan verði líkamsræktin að því skemmtilegasta sem maður geri. Í dag geti hann sjálfur ekki sleppt því að fara daglega í ræktina. „Byrjaðu í ræktinni - það bjargaði lífi mínu.“ Annað ráðið sé að elta tilgang sinn og drauma sína. Vignir Vatnar Stefánsson er efnilegasti skákmaður þjóðarinnar um þessar mundir. „Ég var mjög heppinn að hafa skákina en það var tími á mínum unglingsárum þar sem ég ætlaði að hætta í skák. Það var ekki töff að vera í skák. Það var asnalegt og ég var þessi feiti gæi með bauga sem tefldi og átti erfitt,“ sagði Vignir. Hann hafi, sem betur fer, tekið þá ákvörðun að fara ekki í menntaskóla og feta aðra leið. Þó tók hann fram að það væri ekkert að því að fara menntaleiðina. Hefði hann hlustað á fólkið í kringum sig, sem baktalaði hann og taldi hann vera í rugli, þá væri hann ekki á þessum stað í dag. „Fólk sem sagði við mig að ég yrði ekki stórmeistari svona hratt. Hefði ég hlustað á það þá væri ég ekki á staðnum sem ég er í dag. Þá veit ég ekki hvar ég væri og hvort ég væri hérna,“ sagði hann. „Ef þú hefur drauma, hefur áhuga á einhverju eða elskar eitthvað - mér er alveg sama hvað það er, box, ballet, breytir gjörsamlega engu mál - keyrðu á það. Ekki lifa í eftirsjá að hafa ekki keyrt á það.“ Hann hefði sjálfur lifað í mikilli eftirsjá hefði hann ekki elt drauma sína. „Finndu þinn tilgang og eltu drauminn. Ef þú ætlar að fara menntaleiðina, ekkert að því, en veldu þá eitthvað sem þú hefur áhuga á, vilt gera og getur séð þig gera til langs tíma,“ bætti hann við. Reif sig niður daglega Þriðja ráðið var að vorkenna sjálfum sér ekki of mikið. Sjálfur hafi hann verið fastur í vítahring sjálfsniðurrifs „Ég var mikið að vinna með það að vera inni í herbergi og vera að vorkenna sjálfum mér: að ég hafi lent í þessu, ég hafi misst bróður minn, ég sé með bauga, ég sé feitur og eitthvað svona,“ sagði Vignir í myndbandinu. Vignir Vatnar er eitt mesta efni sem Íslendingar hafa átt í skák.Vísir/Sigurjón „Ég var mikið að rífa sjálfan mig niður, eiginlega daglega var ég farinn að tala niður til mín og segja að enginn muni elska mig og einhverja þvælu. Það er mjög óþægilegt að vera á þessum stað en reyndu að snúa þessu við og hugsa: „Þú ert með sögu til að segja“,“ bætti hann við. Fólk eigi að reyna að pæla í hlutum sem það geti breytt og sleppa því að pæla í fortíðinni og hlutum sem það geti ekki breytt. Annars geti það lent í vítahring sem það kemst ekki út úr. Fjórða og síðasta ráð Vignis var að fara eins mikið út fyrir þægindarammann og maður getur. Sjálfur hafi hann, algjört skáknörd, farið í ræktina og sé sömuleiðis nýbyrjaður í boxi þrátt fyrir að geta ekkert í því. „Það geta verið litlir hlutir, fara í göngutúr, fara á námskeið eða bara eitthvað,“ sagði hann um leiðir út úr þægindarammanum. Myndbandið í heild sinni má horfa á hér að neðan: View this post on Instagram A post shared by Vignir Vatnar (@vignirvatnar) Skák Geðheilbrigði Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Fleiri fréttir Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Sjá meira
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Skák Geðheilbrigði Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Fleiri fréttir Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Sjá meira