Íslenskir hermenn? Jón Pétur Zimsen skrifar 21. maí 2026 07:03 Við Íslendingar höfum notið friðar og stöðugleika í áratugi. Eftir kalda stríðið minnkaði hernaðarlegt vægi Evrópu og við leyfðum okkur að hugsa enn minna en áður um varnarmál. En landslagið hefur breyst hratt á undanförnum árum og er enn að breytast. Hraðar en margir gera sér grein fyrir og sér engan veginn fyrir endann í þeim efnum. Innrás Rússlands í Úkraínu hefur þegar hrundið af stað róttækri endurskoðun á öryggismálum Evrópu. Ríki eru að stækka heri sína, auka útgjöld og endurvekja herskyldu. Á sama tíma má sjá merki þess að Bandaríkin séu að draga úr viðveru sinni í Evrópu og krefjast þess að ríki álfunnar axli meiri ábyrgð á sínum eigin vörnum. Þetta hefði áhrif á stöðu Íslands ef landið gengi í Evrópusambandið. Fyrir það fyrsta væri Ísland bundið af sameiginlegri ákvörðunartöku ESB þar sem vægi landsins tæki fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Í öðru lagi væri við þær aðstæður erfitt að standa á hliðarlínunni þegar önnur ríki tækju á sig auknar byrðar. Í þriðja lagi kemur fram í grein 42.7 í Lissabon-sáttmála ESB að ríkjum sambandsins beri að koma öðrum ríkjum til aðstoðar komi til árása á þau með öllu sem þau hafa yfir að ráða. Í fjórða lagi myndi þrýstingur Bandaríkjanna og NATO á aukna ábyrgð ríkja ESB á eigin vörnum einnig beinast að Íslandi. Slíkur þrýstingur myndi fyrst birtast í auknum fjárframlögum og þátttöku. Ekki síst þar sem aukin hernaðaruppbygging innan ESB er tekin að láni. Ef ástandið versnar, til dæmis með átökum í Eystrasaltsríkjunum, færist umræðan hratt að því hvernig ríki leggja raunverulega allt sitt af mörkum. Þannig getur spurningin um herskyldu fljótt orðið að lykilatriði í anda þess að deila byrðunum og leggja allt sitt að mörkum. Mikilvægt er að hafa í huga í þessu sambandi áform innan ESB um að sambandið komi sér endanlega upp eigin herafla. Þegar er fyrir hendi vísir að slíkum her. Til að mynda hraðsveitir á vegum ESB auk þess sem sambandið býr yfir eigin herráði og fleiri stofnunum í þeim efnum. Í byrjun ársins kallaði Andrius Kubilius, utanríkismálastjóri ESB, eftir því að sambandið kæmi sér upp 100 þúsund manna fastaher. Margir forystumenn innan ESB hafa lýst yfir stuðningi við það markmið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsti því yfir fyrr á árinu að ekki stæði til að stofna íslenskan her og að innganga í ESB myndi ekki þrýsta á um það. Vísaði hún þar til niðurstöðu viðræðna síðast þegar umsóknarferlið var í gangi um að staða Íslands sem herlauss lands yrði virt. Ekkert kemur þar hins vegar fram um að Íslendingar gætu ekki verið kallaðir í mögulegan ESB-her og staða álfunnar allt önnur nú en þá. Við erum í sterkri stöðu með varnarsamning við Bandaríkin, mesta herveldi heims, og aðildarinnar að NATO sem nær öll ríki ESB eiga aðild að, 23 af 27. Aðeins Írland, Austurríki, Malta og Kýpur eru ekki í NATO. Ríki ESB hafa útvistað vörnum sínum til Bandaríkjanna áratugum saman en ætla nú að bæta fyrir þá vanrækslu sem taka mun mörg ár. Í NATO en utan ESB eru hins vegar til dæmis Bretland, Kanada og Noregur auk Bandaríkjanna. Hverju ætti innganga í ESB að bæta við varðandi varnir Íslands? Aukast eða minnka líkur á því að mögulegir íslenskir hermenn verði sendir á átakasvæði ef við göngum í ESB? Er okkur betur borgið innan sambandsins með þann takmarkaða hernaðarmátt sem það býr yfir ofan á annað? Bandaríkin eru einfaldlega eina vestræna ríki sem getur varið bæði sjálft sig og önnur ríki. Varnir landsins eru þannig þegar tryggðar eins og best verður á kosið. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar