Lífeyrissjóðir vilja að stór viðskipti milli tengdra aðila þurfi samþykki hluthafa
Íslensku lífeyrissjóðirnir, langsamlega umsvifamestu fjárfestarnir á markaði, segja varasamt að miða við tiltekið hlutfall af heildareignum þegar stjórnir félaga þurfa að samþykki viðskipti milli tengdra aðila enda yrði reglan í reynd óvirk hjá skuldsettum fyrirtækjum. Þá hafna samtök sjóðanna að það felist í því „gullhúðun“ ef farin er sú leið að umfangsmikil viðskipti tengdra aðila þurfi að bera undir ákvörðun hluthafafundar.
Tengdar fréttir
Sjóðurinn sem selur þegar honum þykir nóg um
Það dró til tíðinda í síðustu viku þegar Gildi lífeyrissjóður seldi megnið af eignarhlut sínum í Skeljungi fyrir 2,3 milljarða króna. Gildi var annar stærsti hluthafinn fyrir söluna með tæp 10,7 prósent en fer nú með 2,7 prósent. Það er ekki algengt að lífeyrissjóður selji hlutfallslega svo mikið í skráðu félagi á einu bretti og þegar svo ber undir er yfirleitt sérstök ástæða að baki.
Ekki skýrt á hvaða vegferð Skeljungur er að mati Gildis
Miklar breytingar hjá Skeljungi og óljós vegferð félagsins voru á meðal þeirra þátta sem höfðu áhrif á ákvörðun Gildis lífeyrissjóðs um að selja megnið af eignarhlutum sínum Skeljungi. Þetta segir Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður eignastýringar Gildis.