Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Samúel Karl Ólason og Smári Jökull Jónsson skrifa 16. maí 2026 12:26 Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir og Björg Magnúsdóttir gætu verið í aðstöðu til að mynda meirihluta eftir kosningar. Vísir/Vilhelm Prófessor í stjórnmálafræði segir meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins vera líklegustu niðurstöðuna í Reykjavík, miðað við nýjustu kannanir. Hann segir Samfylkinguna með erfiðan farangur í farartaskinu eftir óvenju langa valdatíð og býst við mikilli spennu i kvöld.
Samkvæmt kosningaspá Vísis eru meira en helmingslíkur á því að áðurnefndir þrír flokkar geti myndað meirihluta í Reykjavík. Yrði það eini raunhæfi möguleikinn á þriggja flokka meirihluta eftir að Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, útilokaði samstarf við Miðflokkinn. „Það er svona augljósasti meirihlutinn sem við getum séð, bæði út frá málefnum, stöðu flokkanna og svo ekki síst bara svona afstöðu leiðtoganna sjálfra. Bæði til þessara flokka og annarra oddvita innan þeirra,“ sagði Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar útilokaði í gær meirihlutasamstarf við Miðflokkinn. Eiríkur segir spilin þó oft raðast þannig eftir kosningar að það sem menn ætla sér fyrir kosningar reynist síðan ómögulegt að vinna úr. „Það er hins vegar alveg ljóst að það eru aðrir kostir sem Viðreisn og reyndar aðrir flokkar líta til heldur en Miðflokksins, þannig að Miðflokkurinn er svona nokkuð fastur í þeim möguleika að ná að mynda stjórn nokkuð hreint til hægri og það er ekki alveg í kortum skoðanakannananna núna.“ Þreyta í flokknum og meðal kjósenda Samkvæmt spánni fær Samfylkingin fimm borgarfulltrúa og virðist ekki vera að ná flugi í könnunum. Eiríkur segir valdþreytu komna innan flokksins og sömuleiðis þreytu í hugum kjósenda. Engir augljósir möguleikar á meirihlutasamstarfi séu til vinstri. „Það er margur erfður farangur Samfylkingarinnar í þessu kjöri eftir alla þessa óhemjulöngu valdatíð. Það uppgjör sem varð innan Samfylkingarinnar og þeir flokkadrættir sem hafa birst í prófkjörinu og í kosningabaráttunni hafa auðvitað ekki hjálpað flokknum og eru einhvern veginn að há honum að einhverju leyti.“ Eiríkur býst við mikilli spennu í nótt og einstaka borgarfulltrúar gætu verið að detta út og inn. „Þetta eru það margir flokkar og kannanirnar ná kannski ekki almennilega yfir kjör í sveitarstjórnum eins og þau gera á landsvísu, þetta er svona aðeins flóknara. Þannig að það getur vel verið að það sé meira flot á þessu heldur en þessi kosningaspá gefur til kynna,“ sagði Eiríkur Bergmann.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Samfylkingin Vinstrið Sósíalistaflokkurinn Píratar Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Sjá meira