Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. maí 2026 18:42 Kjaftfullt verður í húsinu þegar Grindavík gæti orðið Íslandsmeistari. vísir Allir miðar sem fóru í sölu á þriðja leik Grindavíkur og Tindastóls í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla seldust upp á innan við þremur mínútum.
Grindavík er 2-0 yfir í einvíginu eftir glæstan sigur gegn Tindastóli á Sauðarkróki í gærkvöldi. Grindvíkingar geta því tryggt sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil síðan 2013 og sópað Stólunum í sumarfrí á föstudaginn kemur. Miðasala fór í loftið um sex leytið en á innan við þremur mínútum var allt orðið uppselt. „Ég held að þetta hafi náð svona tveimur og hálfri mínútu, þetta var svakalegt,“ segir Óli Björn Björgvinsson, verðandi formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur. Leyfi er fyrir 1200 manns í HS-Orku höllinni í Grindavík í heildina. Að frádregnum leikmönnum og starfsmönnum gera það um 1100 áhorfendur. Styrktaraðilar UMF Grindavíkur fengu sinn skerf af miðum en um 950 miðar fóru í almenna sölu að sögn Óla Björns. „Það er bara kjaftfullt hús. Algjörlega stappað. Við verðum með 80 courtside miða og einhverja VIP miða líka. Þetta fauk allt út bara á tveimur og hálfri mínútu.“ Eins og lesa má úr ummælum á Facebook síðu körfuknattleiksdeildar Grindavíkur fengu ekki allir miða sem hefðu viljað. Svokallað Fan-Zone verður sett upp í gamla íþróttahúsinu í Grindavík. Þar munu miðalausir stuðningsmenn liðsins, sem og aðrir, getað horft á leikinn í góðri stemningu. „Við breyttum því bara í Fan-Zone og það verður alveg geggjuð stemning þar. Ég er alveg viss um að það verði haugur af fólki þar. Við munum sýna leikinn á risatjaldi og það verður eitthvað svakalegt.“ Fan-Zone-ið í Grindavík er glæsilegt. umf grindavík Leikur Grindavíkur og Tindastóls fer fram á föstudagskvöld. Bein útsending verður á Sýn Sport Ísland frá 18:30.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Tindastóll Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Sjá meira