Kjósendur Viðreisnar líta frekar til vinstri Bjarki Sigurðsson og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa 13. maí 2026 18:30 Viðreisnarmenn í Reykjavík gætu verið í lykilstöðu þegar kemur að meirihlutamyndun. Vísir/Lýður Valberg Kjósendum Viðreisnar í Reykjavík hugnast miklu frekar að mynda meirihluta með vinstri flokkum en hægri flokkum að loknum kosningum samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Flokkurinn gæti verið í lykilstöðu varðandi meirihlutamyndun.
Í nýrri Maskínukönnun var kannað hvaða flokk kjósendur myndu helst vilja sem samstarfsflokk. Tæplega helmingur Sjálfstæðismanna vill vinna með Miðflokknum á meðan Samfylkingarfólk horfir helst til Viðreisnar og Vinstrisins. Meirihluti kjósenda Vinstrisins myndi vilja vinna með Samfylkingu, tæplega helmingur kjósenda Viðreisnar vill samstarf með Samfylkingu en tæplega þriðjungur með Sjálfstæðisflokknum. Svör kjósenda hvers og eins flokks við spurningunni: Hvaða flokk myndir þú vilja í samstarf?Vísir Miðflokkskjósendur eru langspenntastir fyrir samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og meirihluti Framsóknarkjósenda sömuleiðis. Pírötum líst best á Sósíalista, Flokki fólksins á Sjálfstæðisflokkinn og Sósíalistum á Vinstrið. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, ræddi niðurstöður könnunarinnar í kvöldfréttum Sýnar. „Þeir sem halda að kjósendur séu einhverjir kjánar sem séu að hlaupa á eftir TikTok-auglýsingum sjá ekki að hér er hugsun á bak við þessar niðurstöður og það fylgir töluvert hægri-vinstri skiptingunni,“ segir Ólafur. Þá segir hann koma á óvart að flestir kjósendur Flokks fólksins velji Sjálfstæðisflokkinn í samstarf. Þó bendir hann á að ríflega helmingur stuðningsmanna flokksins vilji frekar vinna með vinstri flokkum. Þá segir Ólafur athyglisvert að sjá hve margir Sjálfstæðismenn nefni Miðflokkinn sem fyrsta kost. Fjórðungur kjósenda Sjálfstæðisflokksins nefnir Framsókn og fjórðungur Viðreisn. Hvað varðar Samfylkinguna nefnir ríflega þriðjungur Viðreisn sem fyrsta kost. Færri nefna Vinstrið og enn færri Pírata og Sósíalista. Mjög fáir nefna flokkana lengra til hægri. Við sjáum þetta skýrt hér, kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru ekki spenntir fyrir Samfylkingu og öfugt? Eini líklegi tveggja flokka meirihlutinn. „Það er gagnkvæm lítil væntumþykja,“ segir Ólafur. Hann segir mynstrin í Viðreisn alls ekki jafn skýr og flokkinn því í lykilstöðu um hvort myndaður verði mið-hægrimeirihluti eða mið-vinstrimeirihluti. „Ef við tökum saman hjá Viðreisn, sem vilja helst vinna með Samfylkingunni eða Vinstrinu, þá slefar talan rétt yfir fimmtíu prósent. En ef við tökum saman hverjir vilja helst vinna með Sjálfstæðisflokknum eða Framsókn, þá slefar talan næstum í fjörutíu prósent.“ Þá segir hann athyglisvert að nánast enginn Viðreisnarmaður vilji mynda meirihluta með Miðflokknum. Fréttastofa Sýnar stendur fyrir kappræðum klukkan 19:30 í kvöld en þar verður farið yfir niðurstöður glænýrrar könnunar Maskínu um fylgi flokkanna í beinni. Fylgjast má með kappræðunum á myndlyklum Vodafone og Símans, í Sýnarappinu eða hér á Vísi.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðanakannanir Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins Píratar Sósíalistaflokkurinn Vinstri græn Vinstrið Samfylkingin Mest lesið Íris Helga neitar sök Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Innlent Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Innlent Árasin einkenndist af talsverðri heift Innlent Skaut á bíla af handahófi með riffli Erlent Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Innlent Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Innlent Intuens lagði landlækni Innlent Fleiri fréttir Kjósendur Viðreisnar líta frekar til vinstri Rýnt í nýja könnun Öðruvísi kappræður í beinni útsendingu með gestum í sal Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Lausatök gagnrýnd í Grindavíkurskýrslu og bankarnir spá vaxtahækkun Ákvarðanir um aðgengi að Grindavík lausar í reipunum Aðstoðuðu tvö skip í vanda á Breiðafirði Gjöld fyrir frístund rokið upp Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Þetta er stefna flokkanna í Reykjavík í skipulags- og húsnæðismálum Skjálfti að stærð 3,6 á Mosfellsheiði Ekki mannúðlegt að halda farþegunum um borð Ráðherra segir fáheyrðar tafir á umhverfismati Sundabrautar Gaf barnabarninu vinninginn Fólk sé orðið leitt á því að sjá sömu flokkana hræra Sjá meira