Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Bjarki Sigurðsson og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa 13. maí 2026 18:30 Kjósendur Viðreisnar eru alls ekki spenntir fyrir samstarfi við Miðflokkinn. Fleiri Miðflokksmenn eru spenntir fyrir samstarfi við Viðreisn. Vísir/Vilhelm Kjósendum Viðreisnar í Reykjavík hugnast miklu frekar að mynda meirihluta með vinstri flokkum en hægri flokkum að loknum kosningum samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Flokkurinn gæti verið í lykilstöðu varðandi meirihlutamyndun.
Í nýrri Maskínukönnun var kannað hvaða flokk kjósendur myndu helst vilja sem samstarfsflokk. Tæplega helmingur Sjálfstæðismanna vill vinna með Miðflokknum á meðan Samfylkingarfólk horfir helst til Viðreisnar og Vinstrisins. Meirihluti kjósenda Vinstrisins myndi vilja vinna með Samfylkingu, tæplega helmingur kjósenda Viðreisnar vill samstarf með Samfylkingu en tæplega þriðjungur með Sjálfstæðisflokknum. Svör kjósenda hvers og eins flokks við spurningunni: Hvaða flokk myndir þú vilja í samstarf?Vísir Miðflokkskjósendur eru langspenntastir fyrir samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og meirihluti Framsóknarkjósenda sömuleiðis. Pírötum líst best á Sósíalista, Flokki fólksins á Sjálfstæðisflokkinn og Sósíalistum á Vinstrið. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, ræddi niðurstöður könnunarinnar í kvöldfréttum Sýnar. „Þeir sem halda að kjósendur séu einhverjir kjánar sem séu að hlaupa á eftir TikTok-auglýsingum sjá ekki að hér er hugsun á bak við þessar niðurstöður og það fylgir töluvert hægri-vinstri skiptingunni,“ segir Ólafur. Þá segir hann koma á óvart að flestir kjósendur Flokks fólksins velji Sjálfstæðisflokkinn í samstarf. Þó bendir hann á að ríflega helmingur stuðningsmanna flokksins vilji frekar vinna með vinstri flokkum. Þá segir Ólafur athyglisvert að sjá hve margir Sjálfstæðismenn nefni Miðflokkinn sem fyrsta kost. Fjórðungur kjósenda Sjálfstæðisflokksins nefnir Framsókn og fjórðungur Viðreisn. Kjósendur Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins eiga það sameiginlegt að hafa ekki áhuga á samstarfi með hinum flokkinum.Vísir/vilhelm Hvað varðar Samfylkinguna nefnir ríflega þriðjungur Viðreisn sem fyrsta kost. Færri nefna Vinstrið og enn færri Pírata og Sósíalista. Mjög fáir nefna flokkana lengra til hægri. Við sjáum þetta skýrt hér, kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru ekki spenntir fyrir Samfylkingu og öfugt? Eini líklegi tveggja flokka meirihlutinn. „Það er gagnkvæm lítil væntumþykja,“ segir Ólafur. Hann segir mynstrin í Viðreisn alls ekki jafn skýr og flokkinn því í lykilstöðu um hvort myndaður verði mið-hægrimeirihluti eða mið-vinstrimeirihluti. Í kappræðum Sýnar tóku oddvitar afstöðu í stórum málum sem smáu og voru sjaldnast einhuga.Vísir/Vilhelm „Ef við tökum saman hjá Viðreisn, sem vilja helst vinna með Samfylkingunni eða Vinstrinu, þá slefar talan rétt yfir fimmtíu prósent. En ef við tökum saman hverjir vilja helst vinna með Sjálfstæðisflokknum eða Framsókn, þá slefar talan næstum í fjörutíu prósent.“ Þá segir hann athyglisvert að nánast enginn Viðreisnarmaður vilji mynda meirihluta með Miðflokknum. Fréttastofa Sýnar stendur fyrir kappræðum klukkan 19:30 í kvöld en þar verður farið yfir niðurstöður glænýrrar könnunar Maskínu um fylgi flokkanna í beinni. Fylgjast má með kappræðunum á myndlyklum Vodafone og Símans, í Sýnarappinu eða hér á Vísi.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðanakannanir Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins Píratar Sósíalistaflokkurinn Vinstri græn Vinstrið Samfylkingin Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira