Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. maí 2026 19:49 Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA segir félagið ekki munu taka yfirlýsinguna með sér í kjaraviðræður. Vísir/Vilhelm Yfirlýsing Icelandair þar sem fram kemur að félagið gruni flugstjóra um að hafa ráðist í óformlegar aðgerðir í kjarabaráttu kom flatt upp á Jón Þór Þorvaldsson formann Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Hann segir félagið hvergi bangið og munu mæta til leiks til fundar með forsvarsmönnum félagsins á morgun án gremju. „
Þetta kom flatt upp á okkur, það er mikilvægt að menn geri skýran greinarmun á því hvað eru verkfallsaðgerðir og því að fólk hafi ekki tök á því að hlaupa til vinnu úr fríi eða orlofi. Fólk á rétt á slíku samkvæmt kjarasamning,“ segir Jón Þór í samtali við Vísi. Þrjár áætlunarferðir Icelandair hafa tafist eða þær verið felldar niður vegna skorts á áhafnarmeðlimum, síðast var ferð til Brussel seinkað í morgun. Í yfirlýsingu Icelandair frá því síðdegis segir meðal annars að þvert á fullyrðingar FÍA bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og kallar Bogi Nils Bogason forstjóri félagsins eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð. Til marks um álag en ekki aðgerðir Jón Þór segir af og frá að félagið sé í óformlegum verkfallsaðgerðum. Félagið hafi um árabil varað við því að viðvarandi ástand líkt og nú gæti komið upp vegna gríðarlegs álags á hóp flugmanna. „Þegar álagið er svo mikið þá er hætt við því að þessi sveigjanleiki, sem er sennilega það verðmætasta sem við hjá Icelandair eigum, að hann verði ekki eins aðgengilegur og áður hefur verið,“ segir Jón Þór. Hann hafnar fullyrðingum Boga um að kröfur flugmanna séu óraunhæfar og segir félagið ganga til viðræðna við félagið á morgun um nýjan kjarasamning með opnum huga. „Þetta rekur engan fleyg í þær viðræður af okkar hálfu. Verkefnið fer ekkert frá okkur þrátt fyrir þessa yfirlýsingu,“ segir Jón Þór. Hann segir samband sitt og Boga alltaf hafa verið gott og segir leitt að hann hafi ekki heyrt í sér. „Það hefur alltaf verið stutt á milli okkar og gott í spjalli. Mönnum getur hitnað í hamsi en við erum alltaf tilbúnir til að tala saman og að tala við Boga ef hann vill.“
Kjaramál Flug Icelandair Vinnumarkaður Stéttarfélög Mest lesið Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Sjá meira