Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ Agnar Már Másson skrifar 8. maí 2026 21:10 Nói sendi frá sér yfirlýsingu fyrir hönd ungliðanna vegna málsins. Samsett Mynd Ungliðar Miðflokksins í Mosfellsbæ koma myndbandi flokksins til varnar en þar mátti sjá ungan miðflokksmann veita pólitískum andstæðingi sínum kjaftshögg. Þeir segja myndbandið vísun í þekkt „meme“ og tölvuleikjamenningu. Þeir taka fram að oddvitar meirihlutans, sem fordæmdu myndskeiðið, séu ótengdir við unga fólkið í bæjarfélaginu. Í yfirlýsingu sem Nói Þrastarson sendir fyrir hönd ungliðahreyfingar Miðflokksins segir að myndbandið sem um ræði sé leikið efni sem byggi á „þekktu netmemi og tölvuleikjamenningu“ en þess er þó ekki getið nákvæmar. „Þetta er tungumál sem ungt fólk skilur strax og bregst [svo] við með brosi,“ segir í yfirlýsingunni. Oddvitar meirihlutans í Mosfellsbæ, Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar, sendu í dag frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fordæmdu kosningamyndband Miðflokksins í Mosfellsbæ, en myndskeiðið sýndi ungan mann ganga út af kjörstað eftir að hafa kosið Miðflokkinn og veita svo „libba“ kjaftshögg. „Viðbrögð oddvita Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar í Mosfellsbæ sýna ótrúlega vel hve ótengd þau eru við unga fólkið í sveitarfélaginu. Þau þekkja ekki tungumálið, skilja ekki samhengið, og bregðast við með yfirlýsingum eins og þetta sé alvarleg pólitísk árás,“ segir enn fremur í yfirlýsingu ungliðanna. Þessi sami meirihluti hafi ekki tryggt að ungt fólk í Mosfellsbæ eigi raunverulegan aðgang að húsnæði á viðráðanlegu verði. „Á meðan ný hverfi rísa með dýrum einbýlislóðum komast ungir Mosfellingar ekki inn á húsnæðismarkaðinn í eigin sveitarfélagi. Það segir sína sögu að þau finna sér tíma til að fordæma TikTok-myndband en ekki til að taka á því sem stendur ungu fólki raunverulega fyrir þrifum.“ Yfirlýsingin í heild sinni: Myndbandið sem birt var á TikTok-síðu okkar er leikið efni sem byggir á þekktu netmemi og tölvuleikjamenningu. Þetta er tungumál sem ungt fólk skilur strax og breast við með brosi. [svo] Viðbrögð oddvita Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar í Mosfellsbæ sýna ótrúlega vel hve ótengd þau eru við ungafólkið í sveitarfélaginu. Þau þekkja ekki tungumálið, skilja ekki samhengið, og bregðast við með yfirlýsingum eins og þetta sé alvarleg pólitísk árás. Þetta er sami meirihluti og hefur ekki tryggt að ungt fólk í Mosfellsbæ eigi raunverulegan aðgang að húsnæði á viðráðanlegu verði. Á meðan ný hverfi rísa með dýrum einbýlislóðum komast ungir Mosfellingar ekki inn á húsnæðismarkaðinn í eigin sveitarfélagi. Það segir sína sögu að þau finna sér tíma til að fordæma TikTok-myndband en ekki til að taka á því sem stendur ungu fólki raunverulega fyrir þrifum. Sveinn Óskar Sigurðsson, oddviti Miðflokksins í Mosfellsbæ, ræddi við Vísi í dag og sakaði þar andstæðinga sína um ritskoðun og mistúlkun sem væri pólitísks eðlis. „Sumir eru bara of mikil snjókorn fyrir svona mál, við getum ekki stjórnað hugrenningum fólks út í bæ,“ sagði Sveinn. „Þeir eru bara að sprella strákarnir og hafa gaman af lífinu,“ bætti hann einnig við. Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mosfellsbær Miðflokkurinn Auglýsinga- og markaðsmál Ofbeldi barna Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Í yfirlýsingu sem Nói Þrastarson sendir fyrir hönd ungliðahreyfingar Miðflokksins segir að myndbandið sem um ræði sé leikið efni sem byggi á „þekktu netmemi og tölvuleikjamenningu“ en þess er þó ekki getið nákvæmar. „Þetta er tungumál sem ungt fólk skilur strax og bregst [svo] við með brosi,“ segir í yfirlýsingunni. Oddvitar meirihlutans í Mosfellsbæ, Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar, sendu í dag frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fordæmdu kosningamyndband Miðflokksins í Mosfellsbæ, en myndskeiðið sýndi ungan mann ganga út af kjörstað eftir að hafa kosið Miðflokkinn og veita svo „libba“ kjaftshögg. „Viðbrögð oddvita Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar í Mosfellsbæ sýna ótrúlega vel hve ótengd þau eru við unga fólkið í sveitarfélaginu. Þau þekkja ekki tungumálið, skilja ekki samhengið, og bregðast við með yfirlýsingum eins og þetta sé alvarleg pólitísk árás,“ segir enn fremur í yfirlýsingu ungliðanna. Þessi sami meirihluti hafi ekki tryggt að ungt fólk í Mosfellsbæ eigi raunverulegan aðgang að húsnæði á viðráðanlegu verði. „Á meðan ný hverfi rísa með dýrum einbýlislóðum komast ungir Mosfellingar ekki inn á húsnæðismarkaðinn í eigin sveitarfélagi. Það segir sína sögu að þau finna sér tíma til að fordæma TikTok-myndband en ekki til að taka á því sem stendur ungu fólki raunverulega fyrir þrifum.“ Yfirlýsingin í heild sinni: Myndbandið sem birt var á TikTok-síðu okkar er leikið efni sem byggir á þekktu netmemi og tölvuleikjamenningu. Þetta er tungumál sem ungt fólk skilur strax og breast við með brosi. [svo] Viðbrögð oddvita Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar í Mosfellsbæ sýna ótrúlega vel hve ótengd þau eru við ungafólkið í sveitarfélaginu. Þau þekkja ekki tungumálið, skilja ekki samhengið, og bregðast við með yfirlýsingum eins og þetta sé alvarleg pólitísk árás. Þetta er sami meirihluti og hefur ekki tryggt að ungt fólk í Mosfellsbæ eigi raunverulegan aðgang að húsnæði á viðráðanlegu verði. Á meðan ný hverfi rísa með dýrum einbýlislóðum komast ungir Mosfellingar ekki inn á húsnæðismarkaðinn í eigin sveitarfélagi. Það segir sína sögu að þau finna sér tíma til að fordæma TikTok-myndband en ekki til að taka á því sem stendur ungu fólki raunverulega fyrir þrifum. Sveinn Óskar Sigurðsson, oddviti Miðflokksins í Mosfellsbæ, ræddi við Vísi í dag og sakaði þar andstæðinga sína um ritskoðun og mistúlkun sem væri pólitísks eðlis. „Sumir eru bara of mikil snjókorn fyrir svona mál, við getum ekki stjórnað hugrenningum fólks út í bæ,“ sagði Sveinn. „Þeir eru bara að sprella strákarnir og hafa gaman af lífinu,“ bætti hann einnig við.
Yfirlýsingin í heild sinni: Myndbandið sem birt var á TikTok-síðu okkar er leikið efni sem byggir á þekktu netmemi og tölvuleikjamenningu. Þetta er tungumál sem ungt fólk skilur strax og breast við með brosi. [svo] Viðbrögð oddvita Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar í Mosfellsbæ sýna ótrúlega vel hve ótengd þau eru við ungafólkið í sveitarfélaginu. Þau þekkja ekki tungumálið, skilja ekki samhengið, og bregðast við með yfirlýsingum eins og þetta sé alvarleg pólitísk árás. Þetta er sami meirihluti og hefur ekki tryggt að ungt fólk í Mosfellsbæ eigi raunverulegan aðgang að húsnæði á viðráðanlegu verði. Á meðan ný hverfi rísa með dýrum einbýlislóðum komast ungir Mosfellingar ekki inn á húsnæðismarkaðinn í eigin sveitarfélagi. Það segir sína sögu að þau finna sér tíma til að fordæma TikTok-myndband en ekki til að taka á því sem stendur ungu fólki raunverulega fyrir þrifum.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mosfellsbær Miðflokkurinn Auglýsinga- og markaðsmál Ofbeldi barna Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira