Leiðir skilja ekki hjá Charlize Theron og Balta Þórarinn Þórarinsson skrifar 8. maí 2026 10:48 Charlize Theron og Baltasar Kormákur á frumsýningu Apex í New York í apríl. Þau hafa ákveðið að halda ánægjulegu samstarfi sínu áfram með myndinni Six Clean Kills. STEPHANIE AUGELLO/GETTY Óskarsverðlaunaleikkonan Charlize Theron og brjálaði íslenski leikstjórinn, eins og hún lýsir Baltasar Kormáki, unnu svo vel saman við gerð Netflix-tryllisins Apex að þau hafa ákveðið að gera aðra mynd saman, Six Clean Kills, eftir samnefndri og óútkominni skáldsögu eftir Stan Parish.
Myndin verður gerð undir merkjum Universal Pictures og Baltasar mun auk þess að leikstýra Six Clean Kills koma að framleiðslunni ásamt Theron sem verður væntanlega í aðalhlutverki. Parish verður einnig meðal framleiðenda og ætlar sjálfur að vera með puttana í handritinu.Bransavefurinn Deadline greinir frá þessu og því að Theron hafi verið laustengd verkefninu um skeið en eftir ánægjulegt og farsælt samstarf þeirra Baltasars við gerð Apex hafi þau byrjað að skoða möguleika á frekari samvinnu. Netflix frumsýndi Apex 24. apríl og þrátt fyrir nokkuð köflótta dóma hefur myndin notið mikilla vinsælda og velgengni. Hún náði toppi vinsældalista efnisveitunnar í 82 löndum og rauk þar á meðal vitaskuld lóðbeint í 1. sæti á Íslandi. Samkvæmt tölum frá Netflix er búið að horfa á hana 80 milljón sinnum.Theron hefur í viðtölum talað fjálglega um hversu áhrifarík reynsla það hafi verið að leika undir stjórn Baltasars sem hún lýsir sem brjáluðum íslenskum leikstjóra og hörðum húsbónda sem hafi greinilega verið hárrétti maðurinn til þess að gera Apex. Ekkert er vitað um söguþráð Six Clean Kills enda hvílir mikil leynd yfir innihaldi hinnar óprentuðu skáldsögu Parish. Ekki liggur heldur fyrir hvenær Theron og íslenski brjálæðingurinn hefja tökur á myndinni enda bæði með mörg járn í eldinum. Theron er við tökur á spennumyndinni Tyrant fyrir Amazon MGM Studios og Baltasar vinnur að gerð The Big Fix, fyrir Netflix, með Mark Wahlberg og Riz Ahmed í aðalhlutverkum, en í henni leiða Whalberg og Baltasar saman hesta sína í þriðja sinn en þeim varð vel til vina þegar þeir gerðu Contraband og 2 Guns saman.
Bíó og sjónvarp Hollywood Netflix Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira