„Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Smári Jökull Jónsson skrifar 6. maí 2026 22:33 Kristín Björnsdóttir er formaður Kennarafélags Reykjavíkru sem ásamt Skólastjórafélagi Reykjavíkur boðaði frambjóðendur á fund í Vogaskóla í dag. Vísir/Bjarni Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segir að bera þurfi virðingu fyrir fagmennsku kennara í stað þess að segja þeim hvernig þeir eigi að kenna og hvaða aðferðir þeir eigi að nota. Kennarar og skólastjórnendur boðuðu frambjóðendur í Reykjavík á sinn fund í dag þar sem menntamálin voru rædd.
Kennarafélag og Skólastjórafélag Reykjavíkur boðuðu til fundar í Vogaskóla í dag þar sem menntamálin voru í brennidepli. Frambjóðendur þeirra ellefu framboða sem bjóða fram í Reykjavík sátu í pallborði og fengu fjórar fyrirfram ákveðnar spurningar sem, að sögn formanns kennarafélagsins, kjarna þau málefni sem brenna á kennurum. Frambjóðendur allra flokka sem bjóða fram í Reykjavík sátu í pallborði.Vísir Til dæmis mál barna í viðkvæmum aðstæðum og ekki síst starfsaðstæður kennara. „Svo viljum við líka heyra hvar þau sjá kosti, styrkleika í skólakerfinu, hvar þeim finnst úrbóta þörf. Ýmislegt á þessa vegu.“ Fundu sig knúin til að skapa grundvöll Hún segir samtalið afar mikilvægt, að skapa grundvöll fyrir kennara og skólastjórnendur til að eiga beint samtal við stjórnmálafólkið. Ekki síst í ljósi mikillar umræðu um skólakerfið síðustu misserin. „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol. Kennarar eru ekki endilega sammála því og svo er það líka þannig að kennarar vilja að það sé minna talað um þá og meira talað við þá og við fundum okkur knúin til þess að skapa grundvöll til þess hér“ Fjölmennt var á fundinum í Vogaskóla í dag.Vísir Mikið sé um upphrópanir um stöðu mála og Kristín segir skort á samtali. Nauðsynlegt sé að bæta starfsumhverfi kennara. „Gæði kosta. Þannig að við getum ekki verið endalaust í niðurskurði og það þarf að bera virðingu fyrir fagmennsku kennara í stað þess að segja þeim hvernig þeir eiga að kenna, hvaða aðferðir þeir eiga að nota. Að það þarf að hlusta á kennara og gefa þeim það svigrúm sem þeir þurfa til að vinna faglega þáttinn af starfinu sínu“
Grunnskólar Börn og uppeldi Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira