Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Agnar Már Másson skrifar 30. apríl 2026 18:04 Fjölmiðlanefnd hefur undanfarið bankað upp hjá hlaðvörpum. Getty Í uppfærðum leiðbeiningum Fjölmiðlanefndar um hlaðvörp kemur fram að ekki megi auglýsa nikótínvörur í hlaðvörpum né heldur áfengi. Þá er enn fremur tekið fram að hlaðvörp sem skilgreind eru sem fjölmiðlar njóti ýmissa réttinda, svo sem verndar heimildarmanna.
Fjölmiðlanefnd gaf í dag út tilkynningu þess efnis að uppfærðar leiðbeiningar hafi verið gefnar út um skráningu hlaðvarpa hjá stofnuninni. Þar segir að Fjölmiðlanefnd hafi borist fyrirspurnir, ábendingar og kvartanir vegna auglýsinga í íslenskum hlaðvörpum. Fjölmiðlanefnd hefur á síðustu misserum bankað upp hjá íslenskum hlaðvörpum og krafið þau um að skrá sig sem fjölmiðil, sumum hlaðvarpsstjórnendum til mikillar óánægju. Leiðbeiningarnar um skráningu hlaðvarpa voru fyrst gefnar út árið 2021 í ljósi leiðbeiningarskyldu stjórnvalda en Elfa Ýr Gylfadóttir hjá Fjölmiðlanefnd útskýrir að breytingarnar séu aðallega til þess að samræma leiðbeiningarnar við nýja lagasetningu. „Það hefur verið alveg ljóst frá því að [fjölmiðla]lögin voru sett árið 2011 að hlaðvörp séu fjölmiðlar,“ segir Elfa í samtali við Vísi en hún setur þó þann fyrirvara að ekki öll hlaðvörp teljist til fjölmiðla, rétt eins og öll vefblogg teljast ekki til vefmiðla. Nú er vísað í nýrri starfsreglur Fjölmiðlanefndar nr. 238/2025 í leiðbeiningum. Nýju leiðbeiningarnar skýra að hljóð- eða sjónvarpsrásir geti talist fjölmiðlaþjónusta þótt þeim sé dreift á kerfum sem ekki lúta ritstjórnarábyrgð, svo sem Spotify, YouTube eða jafnvel Instagram. Samkvæmt leiðbeiningunum þarf hlaðvarp að uppfylla eftirfarandi skilyrði svo það teljist fjölmiðill í skilningi laga um fjölmiðla: efnið þarf að lúta ritstjórn efninu þarf að vera miðlað með reglubundnum hætti efninu þarf að vera miðlað til almennings efninu þarf að vera miðlað í þeim tilgangi að upplýsa, fræða eða skemmta Aftur á móti segir í tilkynningu Fjölmiðlanefndar að þrátt fyrir að uppfylla framangreint sé ekki sjálfgefið að hlaðvarp teljist fjölmiðill í skilningi laga um fjölmiðla. Ólíklegt yrði til dæmis að teljast að hlaðvarp sem svipaði til bloggsíðu að efni til myndi teljast fjölmiðill í skilningi laga um fjölmiðla þótt það uppfyllti þessi skilyrði. Í tilviki hlaðvarpa eru það þó helst eftirfarandi atriði sem Fjölmiðlanefnd horfir til þegar skilyrði laga um fjölmiðla eru uppfyllt: Er fjárhagslegur ávinningur af miðlun efnis hlaðvarpsins með: Auglýsingum, kostunum eða annars konar viðskiptaboðum?Áskrift eða annars konar miðlun efnis gegn gjaldi? Annars konar tekjuöflun, eins og styrkjum? Ef fjárhagslegur ávinningur er af miðlun hlaðvarps er það sterk vísbending um að skrá beri hlaðvarpið sem fjölmiðil hjá Fjölmiðlanefnd, segir í leiðbeiningunum. Í nýjum leiðbeiningum er enn fremur bent á að hugtakið hlaðvarp sé sérstaklega skilgreint í 22. tölul. 2. gr. laga um fjölmiðla sem það þegar dagskrárliðir í heild eða að hluta í formi hljóðskráa eru boðnir almenningi til niðurhals. Enn fremur bendir stofnunin á dóma héraðsdómstóla (í máli Eigin Kvenna 2023 og The Mike Show 2022) þar sem fram kemur að hlaðvörp geti talist fjölmiðlar. Í leiðbeiningunum segir einnig að ekki megi auglýsa áfengi og nýtt er í leiðbeiningunum að sérstaklega er tekið fram að auglýsingar á nikótínvörum séu ekki leyfðar. Þá er bætt við í nýju leiðbeiningunum að skráðir fjölmiðlar njóti einnig réttinda, t.d. um verndar heimildarmanna, en þetta kom ekki fram í leiðbeiningunum frá 2021. Þá er bent á að hafa beri í huga að þó að hlaðvarp eða aðrir miðlar séu ekki skráðir hjá Fjölmiðlanefnd, gildi lög um fjölmiðla samt sem áður um starfsemina ef hún uppfylli sett skilyrði. Leiðbeiningar í heild sinni má finna hér.
Fjölmiðlar Hlaðvörp Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira