Tækni með tilgang Einar Stefánsson skrifar 30. apríl 2026 10:20 Það er engu líkara en að lausnin á mörgum vandamálum sé að búa til app. Ef eitthvað er óþægilegt, hægvirkt eða pirrandi, þá er oftar enn ekki gripið til þess ráðs að búa til app. Búa til stafrænt svar við vandanum og koma því rakleiðis í vasann hjá fólki. Enn ein viðbótin í app-kraðakið. Enn eitt appið sem sogar til sín og geymir upplýsingar um þig. Enn eitt appið sem þú notar einu sinni og svo aldrei aftur. Þetta app sem átti að einfalda lífið gerði það í raun flóknara.“Nearly 1 in 4 people abandon mobile apps after only one use.” — Tech Crunch, 2026 Tæknivæðing gerir fyrirtækjum kleift að taka þjónustu sína og henda henni í fang viðskiptavina í viðleitni til að einfalda markmið og ferla. En viðskiptavinurinn er sjaldnast sérfræðingur um starfsemina og hefur takmarkaða getu til að afgreiða sig sjálfur. Ef notandinn þarf að eyða meiri tíma og hugarorku í þjónustuna en áður þá er eitthvað á skjön. Mikið vill meira Við þróun stafrænna lausna hefur verið rík tilhneigingin að bjóða upp á fleiri eiginleika, fleiri tilkynningar, meiri skjátíma og vefja fólki inn í stafrænan hliðarveruleika. Og þá er auðvelt að gleyma að fólk er ekki mælikvarði. Fólk er fólk. En ef við mælum árangur og metum tilgang út frá því hvort daglegt líf batni raun. Hvort ferlar verði einfaldari, biðtími minnki og færri skref séu nauðsynleg. Hvort fólki líði betur með þjónustuna. Hvort sá tími sem sparast skili bættum lífsgæðum og betra starfsumhverfi. Ef svarið er já, þá erum við að gera eitthvað rétt. Stafræn þróun á að gera þjónustu eins einfalda, þægilega og skilvirka og hægt er. Góð stafræn hönnun er ósýnileg. Þegar vel tekst til á tæknin að vera ósýnileg. Hún á að einfalda hið daglega amstur en ekki flækja. Að búa til tækni með tilgang er viðhorf. Að spyrja fyrst: Af hverju erum við að gera þetta? Hverju á þetta að breyta? Hver græðir á því og hvernig? Og jafn mikilvægt: Hvað skiljum við eftir okkur? Þegar stafræn lausn er innleidd, getur verið gott að spyrja sig: Hvaða vandamál þarf ég að leysa, í einni setningu? Ef þú getur ekki sagt það skýrt, þá er lausnin líklega ekki augljós heldur. Hversu algengt er þetta vandamál? Ef þetta er sjaldgæft vandamál, þá þarf lausnin að vera enn einfaldari. Annars mun enginn muna hvernig hún virkar. Hvað er einfaldasta mögulega leiðin til að leysa kjarnavandamálið? Stundum er það vefur. Stundum er það SMS. Stundum er það einfaldlega betra ferli. Stundum er það ekki ný tækni, heldur betri þjónusta.Tækni er ekki markmið, hún er leið. Ef við höfum þetta að leiðarljósi þá batna gæði, pirringur minnkar, og það sem við smíðum verður ekki bara nothæft í dag, heldur nær að vaxa með okkur inn í framtíðina.Ef tæknin eykur fjarlægð frá hinu mannlega, frekar en að hlúa að því, er hún á villigötum.Búum til tækni með tilgang. Höfundur er markaðsstjóri hjá hugbúnaðarhúsinu Reon Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tækni Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar