Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Árni Sæberg skrifar 29. apríl 2026 12:17 Edda Rut tekur við af Ragnari Þór. Öryggismiðstöðin Ragnar Þór Jónsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Öryggismiðstöðvarinnar undanfarin tuttugu ár, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Ragnar Þór mun áfram koma að starfsemi félagsins með virkum hætti og taka sæti i stjórn þess á næsta aðalfundi. Edda Rut Björnsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri Öryggismiðstöðvarinnar.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Edda Rut hafi víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri. Hún hafi frá árinu 2019 gengt fjölbreyttum stjórnunarstöðum hjá Eimskip, síðast sem framkvæmdastjóri innanlandssviðs. Þar áður hafi hún starfað hjá Íslandsbanka í tólf ár í stjórnunar- og sérfræðihlutverkum, síðast sem forstöðumaður sölu- og viðskiptastýringar á fyrirtækja- og fjárfestasviði bankans. „Við bjóðum Eddu Rut velkomna til starfa og hlökkum til að vinna með henni að áframhaldandi vexti félagsins. Um leið viljum við þakka Ragnari Þór fyrir farsæla forystu og ómetanlegt framlag til uppbyggingar Öryggismiðstöðvarinnar síðustu tvo áratugi, en á þeim tíma hefur velta félagsins rúmlega tífaldast. Undir stjórn Ragnars hefur byggst upp öflug liðsheild sem lagt hefur grunn að sterkri stöðu Öryggismiðstöðvarinnar á markaði og skapað góðan grundvöll fyrir næsta kafla í sögu félagsins,“ er haft eftir Benedikt Ólafssyni, stjórnarformanni Öryggismiðstöðvarinnar. „Ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að leiða Öryggismiðstöðina, sem er traust og framsækið þjónustufyrirtæki í góðum og fjölbreyttum rekstri. Viljinn til að sækja fram er skýr og tækifærin til frekari vaxtar eru spennandi. Ég hlakka til að vinna með því öfluga fólki sem starfar hjá félaginu og þróa áfram fjölbreyttar og traustar lausnir sem skapa virði fyrir viðskiptavini okkar,“ er haft eftir Eddu Rut.
Vistaskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira