Innlent

Atli og Sunna nýir frétta­stjórar og Árni vara­frétta­stjóri

Boði Logason skrifar
Kolbeinn Tumi Daðason, Árni Sæberg, Sunna Sæmundsdóttir og Atli Ísleifsson mynda stjórnendateymi fréttastofunnar.
Kolbeinn Tumi Daðason, Árni Sæberg, Sunna Sæmundsdóttir og Atli Ísleifsson mynda stjórnendateymi fréttastofunnar. Vísir/Vilhelm

Atli Ísleifsson og Sunna Sæmundsdóttir hafa tekið við stöðum fréttastjóra á fréttastofu Sýnar. Þá er Árni Sæberg orðinn varafréttastjóri á fréttastofunni. Kolbeinn Tumi Daðason er ritstjóri fréttastofunnar sem segir landsmönnum fréttir á Bylgjunni, Sýn og Vísi.

Um er að ræða breytingar eftir að Erla Björg Gunnarsdóttir lét af störfum sem ritstjóri fréttastofunnar í janúar. Kolbeinn Tumi var áður fréttastjóri allra miðla og Atli og Sunna varafréttastjórar.

Atli hefur starfað sem fréttamaður á fréttastofunni frá árinu 2014 og gegnt stöðu varafréttastjóra frá árinu 2021. Hann er með BA-gráðu í stjórnmálafræði og meistaragráður í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og European Affairs frá Háskólanum í Lundi.

Sunna hóf störf á fréttastofunni árið 2017 sem fréttamaður í kvöldfréttum Stöðvar 2 og hefur síðan þá gegnt ýmsum störfum innan hennar. Sunna er annar umsjónarmanna Kompáss og hefur verið tilnefnd til blaðamanna-, Eddu- og Íslensku sjónvarpsverðlauna fyrir störf sín á þeim vettvangi. Hún tók við stöðu varafréttastjóra árið 2021. Áður var hún blaðamaður hjá Morgunblaðinu en hún er með BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.

Árni hóf störf á fréttastofunni árið 2021. Hann er með BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur sérhæft sig í umfjöllun um dómsmál og viðskipti.

Kolbeinn Tumi byrjaði feril sinn í blaðamennsku sem íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu og Vísi og tók við stöðu fréttastjóra Vísis 2014 og allra miðla fréttastofunnar árið 2021. Hann er með meistaragráðu í blaðamennsku frá Háskóla Íslands eftir að hafa menntað sig og starfað sem byggingaverkfræðingur. Hann hefur í tvígang verið tilnefndur til blaðamannaverðlauna.

„Atli, Sunna og Árni hafa um árabil verið lykilfólk á fréttastofunni sem sinnir krefjandi starfi frá morgni til kvölds, alla daga ársins. Fréttastofan er skipuð úrvalsfólki blaðamanna og framleiðslufólks – samheldnum hópi sem hefur það skýra markmið að færa landsmönnum vandaðar og traustar fréttir,“ segir Kolbeinn Tumi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×