Klúður Koo bjargaði lífi hestaþjálfara Henry Birgir Gunnarsson skrifar 28. apríl 2026 11:16 Younghoe Koo hefur átt erfitt uppdráttar eftir klúðrið ótrúlega. Hann getur þó huggað sig við að klúðrið leiddi eitthvað gott af sér. vísir/getty Eitt fyndnasta atvik síðasta tímabils í NFL-deildinni var neyðarlegt fyrir viðkomandi leikmann en endaði með því að bjarga lífi annars manns. Ótrúlegt kraftaverk.
New York Giants var að spila við New England Patriots á mánudagskvöldi í desember. Hestaþjálfarinn Mark Toothaker var einn þeirra sem horfði á leikinn. Það gerði hann upp í rúmi með eiginkonu sinni, Malory. Kóreski sparkarinn Younghoe Koo stal þá senunni í leiknum á frekar neikvæðan hátt. Hann var að reyna að skora vallarmark fyrir Giants en ekki vildi betur til en svo að hann sparkaði í grasið. Ótrúlega klaufalegt. Toothaker gjörsamlega sprakk úr hlátri er hann sá atvikið. Í raun hló hann svo mikið að hann fékk flog. „Ég hafði aldrei fundið svona tilfinningu áður. Þetta var eins og væri að fá raflost,“ segir Toothaker í samtali við AP. Younghoe Koo with the faulty kick attempt 😅 (via @nfl) pic.twitter.com/YTOy6yeFxj— ESPN (@espn) December 2, 2025 Eiginkona hans er hjúkrunarfræðingur og hún hélt í fyrstu að eiginmaðurinn væri að grínast. Hún sá þó fljótt að svo var ekki og þá hringdi hún á sjúkrabíl. Er hestaþjálfarinn var skoðaður á spítalanum kom í ljós að hann var með æxli í höfðinu á stærð við tennisbolta. Æxlið var fjarlægt hið fyrsta og Toothaker var kominn heim viku síðar. Hann er heill heilsu og veit að það hefði farið illa ef æxlið hefði ekki uppgötvast fyrr en löngu síðar. „Sparkarinn bjargaði lífi mínu. Ég trúi því í einlægni að ég hafi verið á réttum stað á réttum tíma. Klúður Koo kom svo atburðarrásinni af stað. Þetta var kraftaverk,“ segir Toothaker sem er 59 ára gamall. Um helgina mun einn af hestunum hans keppa á hinu fræga Kentucky Derby. Hann vill gjarna bjóða Koo þangað sem gesti sínum. Toothaker gerir sér grein fyrir því að þetta var erfið stund fyrir sparkarann en hún bjargaði lífi. Koo, sem hefur verið einn besti sparkari deildarinnar um árabil, missti vinnuna hjá Giants tveimur vikum síðar og er atvinnulaus sem stendur.
NFL Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira