Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Árni Sæberg skrifar 28. apríl 2026 10:22 Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Stjórn Íslandsbanka hefur samþykkt nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. Markmið breytinganna er að einfalda stjórnskipulag og stytta boðleiðir og þannig efla þjónustu bankans við viðskiptavini enn frekar. Með breytingunum verður stjórnendum fækkað um 15 prósent og forstöðumönnum um 20 prósent. Alls verður starfsmönnum fækkað um fimmtíu á árinu.
Í tilkynningu þess efnis til Kauphallar segir að skipulagsbreytingunum sé ætlað að styrkja bankann í áframhaldandi sókn, þar sem stafræn þróun, aukin nýting gervigreindar og breyttar kröfur viðskiptavina kalli á nýja nálgun í rekstri og þjónustu. „Með breytingunum er stjórnendum fækkað um 15 prósent í heild sinni á árinu og forstöðumönnum um 20 prósent. Þá fækkar aðalnefndum bankans úr ellefu í fjórar. Stofnað hefur verið nýtt stoðsvið, Stefnumótun og menning, sem mun stuðla að auknu samstarfi á milli annarra stoðsviða og styrkja áfram og þróa fyrirtækjamenningu bankans. Undir sviðið fellur lögfræðiþjónusta, mannauðsmál, markaðs- og samskiptamál, rekstrardeild auk stefnumótunar og sjálfbærni.“ Tuttugu í dag og fimmtíu á árinu Þá hafi verið gerðar breytingar á nöfnum viðskiptaeininga bankans á íslensku og beri þær nú heitin einstaklingssvið, fyrirtækjasvið og fjárfestingarbankasvið. Með nafnabreytingunum sé verið að skerpa á áherslum sviðanna. Starfsfólki fækki um rúmlega tuttugu við breytingar dagsins og fækkunar gæti helst í stoðeiningum bankans. Í heild muni stöðugildum fækka um samtals 50 á árinu. Þar sé tekið tillit til fækkunar vegna snemmloka sökum aldurs sem greint hafi verið frá í ársuppgjöri 2025. Íslandsbanki leggi áherslu á að staðið sé af ábyrgð og virðingu að breytingum sem þessum og að hlúið sé að því starfsfólki sem þær ná til. 260 milljónir í starfslokakostnað en spara milljarð á ári Kostnaður vegna starfsloka sem tilkynnt voru í dag komi til gjalda á öðrum ársfjórðungi og hann nemi tæpum 260 milljónum króna. Kostnaður vegna afnáms snemmalokakerfis hafi verið gjaldfærður á árinu 2025. Gert sé ráð fyrir að árlegur launakostnaður hjá Íslandsbanka dragist saman um einn milljarð króna í kjölfar breytinganna. Áhrif þess muni fyrst koma fram í afkomu þriðja ársfjórðungs 2026 og muni koma fram að fullu á árinu 2027. „Breytingarnar eru liður í því að auka skilvirkni, stytta boðleiðir og einfalda ákvarðanatöku. Þannig eflum við þjónustu við viðskiptavini og nýtum þau tækifæri sem felast í gjörbreyttu tækniumhverfi. Við höfum unnið markvisst að því að greina áhrif nýjustu tæknibreytinga á starfsemi bankans. Við ætlum ekki aðeins að fylgja þeirri þróun, heldur vera leiðandi í henni og nýta hana til að styrkja Íslandsbanka sem eitt af leiðandi þjónustufyrirtækjum landsins. Í þessum skipulagsbreytingum erum við að kveðja öflugt starfsfólk sem hefur lagt mikið af mörkum til bankans og við þökkum þeim kærlega fyrir mikilvægt framlag. Með þessum breytingum heldur Íslandsbanki áfram að þróa rekstur sinn, styrkja samkeppnishæfni og tryggja að skipulag og kostnaðargrunnur styðji við langtíma árangur og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini,“ er haft eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka. Fréttin hefur verið uppfærð.
Íslandsbanki Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira