Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Eiður Þór Árnason skrifar 27. apríl 2026 22:08 Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur. Sýn/Ívar Fannar Ragnar Freyr Ingvarsson læknir sakar framkvæmdastjóra á Landspítala um ósannindi og ítrekar að uppsögn hans verði úrlausnarefni dómstóla. Hlutastarf Ragnars, sem er einnig þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu, var lagt niður með vísan til rekstrarhagræðingar.
Hann telur að um ólögmæta uppsögn sé að ræða en hann er formaður Læknafélags Reykjavíkur. Stjórn félagsins hefur sömuleiðis gefið út að hún telji gjörninginn ólögmætan. Ragnar segir að í nýlegu bréfi frá Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala, sé fullyrt að honum hafi ekki verið sagt upp störfum í símtali þeirra þann 8. apríl heldur einungis verið boðaður á fund í tengslum við fyrirhugaða uppsögn. Ragnar segir þetta rangt. „Hann var alveg skýr um að það væri verið að leggja niður starfið mitt og mér því sagt upp. Aðspurður sagði hann ríka aðhaldskröfu vera á spítalanum. Það veit Rafn Benediktsson mæta vel þó hann kjósi að segja aðra sögu. Hann er skýrmæltur maður og boðskapurinn stuttur og hnitmiðaður eins hans er von og vísa,“ segir Ragnar í færslu á Facebook-síðu sinni. Þá hafnar Ragnar því að honum hafi verið boðið aukið starfshlutfall í umræddu símtali líkt og Rafn hafi fullyrt. „Um slíkt var aldrei rætt. Fréttir af þessu las ég fyrst í fjölmiðlum daginn eftir.“ Ragnar hefur verið í launalausu leyfi frá spítalanum. Óskað hefur verið eftir viðbrögðum frá Landspítala eftir að Rafn vísaði fyrirspurn fréttastofu á samskiptafulltrúa spítalans. Í afriti af bréfi Rafns til Ragnars sem hinn síðarnefndi deilir kemur fram að það hafi verið sent með aðkomu lögfræðings hjá Mörkinni lögmannsstofu. Njóti ekki sérstakrar verndar Í bréfinu segir að uppsögn Ragnars hafi komið til „vegna nauðsynlegra aðgerða sem spítalinn þurfti að ráðast í til að ná fram hagræðingu í rekstri“ á sviði bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu spítalans. Ragnar hafi verið einn af fimm starfsmönnum sviðsins í „mjög lágu starfshlutfalli“ sem var sagt upp störfum. Aðhaldskröfur á hendur spítalanum nemi vel á fimmta milljarð króna og þá hafi það meðal annars verið til skoðunar að hlutfall lækna í hlutastarfi sé hærra þar en á erlendum sjúkrahúsum. Jafnframt er fullyrt að Ragnar njóti ekki sérstakrar verndar sem formaður Læknafélags Reykjavíkur og stjórnarmaður í Læknafélagi Íslands þar sem hann hafi ekki verið formlega kjörinn eða tilnefndur sem trúnaðarmaður starfsmanna Landspítala. „Vernd trúnaðarmanna er ætluð þeim sem taka að sér hlutverk við að gæta hagsmuna samstarfsmanna sinna á eigin vinnustað, ekki þeim sem sinna almennri hagsmunagæslu fyrir aðra hópa eða á öðrum stöðum,“ segir í bréfinu til Ragnars. Þá er vísað til þess að Læknafélag Reykjavíkur gæti fyrst og fremst hagsmuna sjálfstætt starfandi lækna. „Það er ótrúlegt að verða vitni að framferði stjórnenda Landspítala í minn garð,“ segir Ragnar í Facebook-færslu sinni. „Eftir allt sem á undan er gengið, farsælt starf og samvinnu með frábæru samstarfsfólki síðasta áratuginn. Að leggjast svo lágt að segja ósatt til að réttlæta gjörðir sínar. Að réttlæta ólögmæta uppsögn. Réttara hefði verið að biðjast afsökunar á þessu mistökum og axla ábyrgð. Af því hefði allavega verið einhver sómi.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Landspítalinn Heilbrigðismál Mannauðsmál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Læknafélag Reykjavíkur lýsir yfir furðu og vonbrigðum með ákvörðun Landspítala að leggja niður stöðu Ragnars Freys Ingvarssonar, formanns LR. Félagið telur uppsögnina ólögmæta og áskilur sér rétt til að leita réttar síns. 16. apríl 2026 15:30 Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Stjórn Félags sjúkrahúslækna lýsir yfir þungum áhyggjum af uppsögnum sérfræðilækna á Landspítalanum í hagræðingarskyni. Ljóst sé að þörf er á læknum en framkoma líkt og í máli Ragnars Freys Ingvarssonar læknis laði ekki sérfræðinga að Landspítalanum. 15. apríl 2026 14:29 Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Ragnar Freyr Ingvarsson læknir hefur fengið formlegt uppsagnarbréf afhent af Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Hann segir skýringar Rafns á uppsögninni ekki halda neinu vatni og að hann muni láta reyna á lögmæti uppsagnarinnar. 13. apríl 2026 16:53 Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir sem var sagt upp störfum á Landspítalanum í gær, segir það ekki rétt að honum hafi verið boðað hærra starfshlutfall. Farið sé með fleipur. 9. apríl 2026 11:33 Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Sjá meira
Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Læknafélag Reykjavíkur lýsir yfir furðu og vonbrigðum með ákvörðun Landspítala að leggja niður stöðu Ragnars Freys Ingvarssonar, formanns LR. Félagið telur uppsögnina ólögmæta og áskilur sér rétt til að leita réttar síns. 16. apríl 2026 15:30
Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Stjórn Félags sjúkrahúslækna lýsir yfir þungum áhyggjum af uppsögnum sérfræðilækna á Landspítalanum í hagræðingarskyni. Ljóst sé að þörf er á læknum en framkoma líkt og í máli Ragnars Freys Ingvarssonar læknis laði ekki sérfræðinga að Landspítalanum. 15. apríl 2026 14:29
Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Ragnar Freyr Ingvarsson læknir hefur fengið formlegt uppsagnarbréf afhent af Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Hann segir skýringar Rafns á uppsögninni ekki halda neinu vatni og að hann muni láta reyna á lögmæti uppsagnarinnar. 13. apríl 2026 16:53
Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir sem var sagt upp störfum á Landspítalanum í gær, segir það ekki rétt að honum hafi verið boðað hærra starfshlutfall. Farið sé með fleipur. 9. apríl 2026 11:33