Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. apríl 2026 16:50 Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir geldur varhug við hugmyndum Miðflokksins í leikskólamálum. Vísir/Ívar Fannar Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum og brottvísun af heimili var samþykkt á Alþingi í dag. Með breytingunum er heimilt að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði, til að mynda með ökklabandi. „
Ég fagna því að þetta frumvarp sé orðið að lögum. Þetta er skýrt skref til að auka vernd brotaþola. Með þessu fær lögregla þau úrræði sem þarf til að verja þolendur og ábyrgðin er færð á gerendur. Við ætlum ekki að sætta okkur við að fólk þurfi að lifa í ótta við áreitni eða ofbeldi og erum að senda skýr skilaboð um að slíkt verði tekið alvarlega,“ er haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Nú má beita rafrænu eftirliti þegar einstaklingur sætir nálgunarbanni eða brottvísun af heimili en einungis ef grunur er um að hann muni brjóta gegn þeim úrræðum. Þá verður vöktun að vera talin nauðsynleg. Markmiðið með lögunum er að auka vernd brotaþola gegn heimilisofbeldi og umsáturseinelti. Lögreglustjóra er heimilt að taka ákvörðun um nálgunarbann og brottvísun af heimili og rafrænt eftirlit þegar það á við. Í tilkynningunni segir að upp hafi komið mál þar sem setið hafi verið um fólk árum saman án þess að lögregla hafi haft nægilega skilvirk úrræði til að bregðast við. Þessi lagabreyting feli því í sér veruleg tækifæri til að sporna gegn endurteknum brotum gegn nálgunarbanni og brottvísun.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Lögreglan Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira