Hvar á láglaunafólk að búa? Finnbjörn A Hermannsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa 27. apríl 2026 13:16 Húsnæðisöryggi er grundvöllur velferðar og húsnæði er stærsti útgjaldaliður heimilanna. Félagslegar lausnir í húsnæðismálum hafa því frá upphafi verið mikilvægt baráttumál verkalýðshreyfingarinnar. Um síðustu aldamót þegar stjórnvöld lögðu niður verkamannabústaðakerfið var tekin pólitísk ákvörðun um að markaðsvæða húsnæðisöryggi láglaunafólks. Sú ákvörðun gróf undan lífskjörum og skildi stóran hóp launafólks eftir með óhóflegan húsnæðiskostnað. Enn í dag er staðan sú að fjöldi fólks á vinnumarkaði hefur enga möguleika á að kaupa sér húsnæði. Þau eiga fárra kosta völ nema að leigja á almennum markaði og greiða húsaleigu sem er oft og tíðum um og yfir helmingur af ráðstöfunartekjum sem setur fólk í fjárhagslega spennitreyju. Ungt fólk, aðfluttir og einstæðir foreldrar eru fjölmennust í þeim hópi sem hafa verið skilin eftir á húsnæðismarkaðnum. Almenna íbúðakerfið er lykillinn að húsnæðisöryggi og viðráðanlegum húsnæðiskostnaði fyrir þessa hópa. Verkalýðshreyfingin og almenna íbúðakerfið Í aðdraganda kjarasamninga árið 2015 setti verkalýðshreyfingin uppbyggingu á nýju húsnæðiskerfi fyrir láglaunafólk á oddinn. Afraksturinn af þeirri baráttu var stofnun almenna íbúðakerfisins. Innan þess starfa óhagnaðardrifin leigufélög fyrir fólk með tekjur og eignir undir ákveðnum mörkum. Til að leigan sé viðráðanleg veita ríki og sveitarfélög stofnframlög fyrir 30% af byggingarkostnaði (ríkið 18% og sveitarfélög 12%). Kerfið var lögfest árið 2016 og í árslok 2025 höfðu 4.000 íbúðir risið innan þess, flestar eru félagslegar íbúðir sveitarfélaga og námsmannabúðir, en einungis um 1.100 íbúðir eru sérstaklega ætlaðar láglaunafólki. Það svarar með engu móti þeirri þörf sem er til staðar og eru langtum færri íbúðir en stjórnvöld hafa lofað. Ef þau loforð sem stjórnvöld hafa gefið í tengslum við kjarasamninga frá árinu 2015 hefðu gengið eftir væru nú 7.000 íbúðir í almenna íbúðakerfinu fyrir lágtekjufólk á vinnumarkaði. Ein helsta ástæða þess hversu hægt hefur gengið er að allt of mörg sveitarfélög taka ekki alvarlega þá lagalegu ábyrgð sína, að tryggja öllum húsnæðisöryggi. Þörfin fyrir almennar íbúðir er gríðarleg en tæpur helmingur leigjenda býr við íþyngjandi húsnæðiskostnað sem þýðir að þau greiða yfir 40% af ráðstöfunartekjum í húsaleigu. Bjarg sem er í eigu ASÍ og BSRB er stærsta félagið innan almenna íbúðakerfisins og eina félagið sem byggir íbúðir fyrir launafólk. Skortur á almennum íbúðum fyrir launafólk endurspeglast einnig í því að um 4.000 manns eru nú á biðlista eftir íbúð hjá Bjargi. Sveitarfélögin hafa brugðist láglaunafólki Um aldamótin síðustu voru um 7.000 íbúðir í verkamannabústaðakerfinu eða um 7% íbúða í landinu. Í dag eru 1.100 íbúðir fyrir þennan sama hóp, láglaunafólk, eða innan við 0,7% íbúða í landinu. Félagslegar lausnir í húsnæðismálum vinnandi fólks hafa því verulega gefið eftir og óhætt er að segja að stjórnvöld hafi gjörsamlega brugðist. Fjölgun almennra íbúða fyrir vinnandi fólk er því eitt brýnasta verkefni þeirra sem verða kosin í sveitarstjórnir þann 16. maí nk. Uppbygging húsnæðis fyrir láglaunafólk innan almenna íbúðakerfisins verður að fara efst á forgangslistann. ASÍ og BSRB standa fyrir opnum fundi um almenna íbúðakerfið á morgun, þriðjudaginn 28. apríl kl. 9 -10.30 í Eddu. Þar verður kynnt ný greining samtakanna um þróun almenna íbúðakerfisins. Við hvetjum sveitarstjórnarfólk um land allt til að láta sig húsnæðisöryggi launafólks varða og mæta á fundinn. Finnbjörn A Hermannsson, forseti ASÍ Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnbjörn A. Hermannsson Sonja Ýr Þorbergsdóttir Húsnæðismál Mest lesið Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Sjá meira
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun