Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 27. apríl 2026 13:40 Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, opnaði sig um kostnaðarsöm sokkakaup í spjalli hjá Orku. Elísabet Blöndal Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, hefur mikinn áhuga á klæðaburði og tísku og hefur fjárfest í ýmsum hátískuflíkum undanfarin ár. Sum kaup hafa verið góð en önnur ekki eins farsæl.
Flóni, sem er fæddur árið 1998, skaust upp á íslenska stjörnuhimininn árið 2017 og hefur gert það gott sem tónlistarmaður og rappari. Hann á að baki sér smelli á borð við Trappa, Falskar ástir, Leika, Party, Ungir strákar og Engill. Hann sagði frá rándýrum sokkakaupum í spjalli við samfélagsmiðlastjóra orkudrykksins Orku á samfélagsmiðlinum TikTok og því miður náði hann ekki að nota fínu sokkana oft. „Ég hef keypt mjög dýra sokka sem kostuðu 120 þúsund krónur, Gucci sokka, þegar ég var á svona öðru árinu mínu í tónlist. Ég týndi þeim strax og það skipti engu máli. Þetta voru líka bara ljótustu Gucci sokkar sem ég hef séð sko,“ segir Flóni kíminn í myndbandi sem má sjá hér fyrir neðan: @orkaorkaorkaorka Replying to @user579954688 @𝐅𝐋𝐎𝐍𝐈 10 ára tónleikar??👀 #íslenskt #flóni #fyp #orka #chat ♬ original sound - Orka Þar staðfestir Flóni líka hjúskaparstöðu sína en hann og tónlistarkonan Kolfreyja, betur þekkt sem Alaska, eru kærustupar eftir að hafa verið að stinga nefjum saman undanfarna mánuði.
Tíska og hönnun Tónlist Ástin og lífið Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira