Körfubolti

Á­fall fyrir Vals­menn: Frank Aron fór sár­þjáður af velli

Aron Guðmundsson skrifar
Frank Aron lá sárþjáður eftir á vellinum
Frank Aron lá sárþjáður eftir á vellinum Vísir/Skjáskot

Valsmenn urðu fyrir áfalli í fyrsta leikhluta í leik sínum gegn Grindavík í undanúrslitum Bónus deildarinnar í körfubolta sem nú stendur yfir. Frank Aron Booker, leikmaður liðsins meiddist á hné og fór sárþjáður af velli.

Uppfært 20:35: 

Í viðtali við Andra Má Eggertsson á Sýn Sport á meðan á leik stóð sagði Frank Aron frá því að hann væri á leiðinni upp á sjúkrahús í myndatöku. Hné hans og Keyshawn Woods skullu saman. Frank Aron hefur lent í slíku atviki áður en segir sársaukan sem hann fann fyrir núna meiri en í fyrri skiptum. Það verður að koma í ljós hvert framhaldið verður. 

Frank Aron mikilvægur hlekkur í liði Vals sem hafði nú þegar orðið fyrir blóðtöku fyrir leik kvöldsins gegn Grindavík þegar greint var frá því að Lazar Nikolic yrði ekki með vegna meiðsla sem hann hlaut í fyrsta leik liðanna. 

Frank Aron gat ekki haldið leik áfram eftir að hafa meiðst í fyrsta leikhluta í kvöld eftir samstuð við liðsfélaga sinn Keyshawn Woods. 

Um annan leik Vals og Grindavíkur í undanúrslitum Bónus deildarinnar er að ræða. Grindavík leiðir einvígið 1-0. 

Frank Aron var auðsjáanlega sárþjáður og þurfti að styðja við hann á leið hans út af vellinum. Óvíst á þessari stundu hversu alvarleg hans meiðsli eru.

Nú stendur yfir leikur Vals og Grindavíkur í N1-höllinni að Hlíðarenda leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland og lýst í beinni textalýsingu sem má finna hér fyrir neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×