Sjö felldir í Úkraínu Agnar Már Másson skrifar 26. apríl 2026 10:08 Úkraínskir viðbragðsaðilar við húsið í Dípró, þar sem Rússar gerðu árás. AP Hið minnsta sjö voru felldir í umfangsmiklum loftárásum Rússa víða í Úkraínu í fyrrinótt og þar af fimm í Dnípró, þar sem sprengja lenti á íbúðahúsnæði. Þessa sömu nótt sóttu úkraínskir drónar djúpt inn í Rússland.
Viðbragðsaðilar og bæjaryfirvöld hafa greint frá þessu en Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í samfélagsmiðlafærslu að árásirnar hefðu staðið yfir alla nóttina, aðfaranótt laugardags. Héraðsstjórinn í Kherson hefur enn fremur gefið út að sjö hafi særst í rússneskum árásum þar, að því er BBC greinir frá. Lengra til austurs gerðu Rússar allt að 700 loftárásir á hátt í fimmtíu byggðakjarna í Saporísjíahéraði yfir 24 tímabil. Þar féllu tveir að sögn héraðsstjórans Ivans Fedorov, sem sagði að heimili, farartæki og innviðir hefðu orðið fyrir tjóni. Þá urðu samgönguinnviðir fyrir tjóni í Ódesa-héraði, samkvæmt yfirlýsingu varaforsætisráðherrans Oleksí Kúleba í gær. „Árásin olli skemmdum á innviðum hafnar og flutninga, vöruhúsum, tæknibúnaði, geymslutönkum fyrir farm, stjórnsýslubyggingum og vöruflutningum,“ skrifaði Kúleba á Telegram og bætti við að farþegaskip sem sigldi undir flaggi Palá hafi einnig orðið fyrir skaða. Ekki var tilkynnt um meiðsl á áhöfn. Úkraínski flugherinn sagðist hafa skotið niður eða gert óvirka 124 af 144 drónum sem Rússar sendu á loft í nótt en árásir voru skráðar á 11 stöðum. Sömuleiðis sögðust Rússar hafa skotið niður um 200 úkraínska dróna. Í Jekaterinburg í Rússlandi, sem er um 1.600 kílómetrum frá landamærum Úkraínu, hafi fimm manns særst þegar dróni hafnaði á byggingu, að sögn yfirvalda í Rússlandi að því er BBC greinir frá.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira