Glæsilegar í Gamla Bíói Freyja Þórisdóttir skrifar 24. apríl 2026 17:04 Stelpurnar samglöddust nýkrýndri Ungfrú Ísland svo sannarlega. Arnór Trausti Nítján stúlkur kepptust í vikunni um titilinn Ungfrú Ísland í Gamla bíói. Þær gengu meðal annars um á sundfötunum og svöruðu spurningum um málefni líðandi stundar sem og um málefni sem brenna á þeim. Keppnin einkenndist af glamúr, glimmeri og glæsilegheitum.
Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir stóð uppi sem sigurvegari og hlaut titilinn Ungfrú Ísland 2026 en þessi 26 ára söngkona, kennari og leikkona er af mörgum þekkt sem Sigga Ózk. Henni er svo sannarlega margt til lista lagt og hefur hún hefur fylgt í fótspor föður síns, Hrafnkels Pálmarssonar úr hljómsveitinni Í svörtum fötum, og gefið út lög. Þá keppti hún í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2023 með lagið Gleyma þér og dansa og aftur árið 2024 með lagið Um allan alheiminn. Móður Siggu, Elínu Maríu Björnsdóttur, þekkja margir úr Brúðkaupsþættinum Já sem sýndir voru á Skjá Einum fyrir rúmum tveimur áratugum. Þau fjölskyldan hafa lengst af búið í Garðabænum og Sigga, ásamt systur sinni Tinnu, var fjallkona bæjarins árið 2022. Guðrún Eva Hauksdóttir, sem var í öðru sæti í keppninni um Ungfrú Ísland 2025, kom í stað Helenu Hafþórsdóttur O'Connor og krýndi arftaka í lok kvölds. Helena, sem vann keppnina 2025, og fegurðardrottningin Kristín Anna Jónasdóttir, sem bar titilinn Miss Cosmo Iceland 2025, sögðu báðar skilið við samtökin Ungfrú Ísland í vetur. En sem fyrr segir var keppnin stærri en nokkru sinni fyrr og myndaveislu frá kvöldinu má sjá hér að neðan. Stelpurnar stigu trylltan dans með Guðrúnu Evu fyrir miðju, atriðið var í upphafi kvölds og setti tóninn fyrir restina af keppninni.Arnór Trausti Eva Ruža Miljević var kynnir kvöldsins en hún féll vel í hópinn og hélt uppi frábærri stemningu allt kvöldið.Arnór Trausti Ungfrú Grafarvogur, Guðlaug Birta, og Ungfrú Esja, Aníta Mist, voru meðal þeirra sem voru prýddar fjölda borða í lok kvölds.Arnór Trausti Eva Ruza reytti af sér brandarana. Fyrir aftan hana standa stelpurnar sem höfnuðu í efstu fimm sætunum.Arnór Trausti Sigurvegarar síðustu ára dönsuðu „kórónukónga“ með Siggu í fararbroddi!Arnór Trausti Rós var bætt í hnappagatið á kjólnum hennar Siggu um leið og hún var krýnd.Arnór Trausti Ungfrú Njarðvík, Nadía Líf, var valin vinsælasta stúlkan af hinum keppendunum en Hrafnhildur Haraldsdóttir, sem varð Ungfrú Ísland árið 2022, aðeins átján ára gömul, færði henni borðann.Arnór Trausti Klara og Patr!k létu áhorfendur heyra það.Arnór Trausti Tvíburarnir Sara, Ungfrú Geysir, og Lilja, Ungfrú Gullfoss, Guðjónsdætur voru titlaðar fyrirmyndarkeppendur en þetta var í fyrsta skipti sem keppendur deila titli.Arnór Trausti Dómnefndin var skipuð þeim Einari Bárðarsyni, umboðsmanni og athafnamanni; Ingu Tinnu Sigurðardóttur, forstjóra Dineout; Kristni Óla Hrólfssyni, markaðsmanni og klippara; Patreki Jaime, áhrifavaldi og útvarpsmanni, og Töru Sif Birgisdóttur, dansara og fasteignasala.Arnór Trausti Sigga ásamt Tinnu systur sinni og Ellu mömmu sinni, glæsilegar mæðgur!Arnór Trausti
Ungfrú Ísland Fegurðarsamkeppnir Reykjavík Garðabær Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið „Hefði ekki getað gengið betur“ Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Fleiri fréttir „Hefði ekki getað gengið betur“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Sjá meira