Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar 25. apríl 2026 08:03 Mikilvægar skýrslur um hraunavá á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu komu út í vikunni. Skýrslurnar eru mikilvægt framlag til þess að sveitarfélög, almannavarnir, sérfræðingar og aðrir viðbragðsaðilar geti undirbúið sig betur, styrkt innviði og tekið upplýstar ákvarðanir með öryggi íbúa að leiðarljósi. Það er mikilvægt að undirstrika að hér er um langtímahættumat að ræða. Skýrslurnar eru ekki spá um næsta atburð, ekki viðvörun um yfirvofandi gos og ekki tilefni til sérstakra viðbragða almennings á þessari stundu. Þær veita hins vegar betri yfirsýn yfir mögulega hættu til lengri tíma og nýtast þannig við skipulag, viðbragðsáætlanir og undirbúning. Niðurstöðurnar skipta miklu máli fyrir Hafnarfjörð því þar kemur fram að Hafnarfjörður er það sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sem er berskjaldaðast fyrir hraunflæði. Það er staðreynd sem þarf að taka af ábyrgð og yfirvegun. Skýrslurnar hjálpa okkur að sjá betur líklegar rennslisleiðir, hvaða svæði geta verið útsett og hvaða innviðir gætu verið viðkvæmir. Þar má nefna mikilvæga innviði á borð við vatnsbólið í Kaldárbotnum, auk innviða sem tengjast vatni, raforku, samgöngum og grunnþjónustu. Meginmarkmiðið er að nýta þessa þekkingu til að efla öryggi samfélagsins. Fyrir Hafnarfjörð þýðir það meðal annars að farið verður faglega yfir skipulagsmál, landnýtingu, viðbragðsáætlanir, rekstraröryggi og mögulegar mótvægisaðgerðir þar sem þess gerist þörf. Þessi vinna mun fara fram í samstarfi við sérfræðinga, almannavarnir, viðbragðsaðila, skipulagsyfirvöld og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Náttúruvá virðir ekki sveitarfélagamörk og því skiptir miklu máli að samhæfing, upplýsingagjöf og undirbúningur sé unninn í góðu samstarfi. Sérstök áhersla verður lögð á skýr og ábyrg samskipti. Upplýsingar skipta miklu máli þegar mikilvægt að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu stilli saman strengi og tali skýrt um meginatriðin; að þetta er langtímahættumat, að tilgangurinn sé að bæta undirbúning og markmiðið að efla öryggi íbúa. Meginatriðin eru þessi: Skýrslurnar eru langtímahættumat, ekki spá um yfirvofandi atburð. Ekki er tilefni til sérstakra viðbragða almennings á þessari stundu. Niðurstöðurnar styrkja faglegan grunn fyrir undirbúning, skipulag og viðbrögð. Hafnarfjörður þarf að fara sérstaklega vel yfir atriði sem varða útsett svæði og mikilvæga innviði. Áfram verður unnið í nánu samstarfi við sérfræðinga, almannavarnir og önnur sveitarfélög. Skýr, samræmd og yfirveguð upplýsingagjöf verður lykilatriði í framhaldinu. Hafnarfjarðarbær mun fylgja málinu eftir af festu og ábyrgð. Við nýtum þá þekkingu sem nú liggur fyrir til að styrkja undirbúning, efla viðbúnað og tryggja að öryggi íbúa sé ávallt í forgangi. Betri þekking kallar á nákvæmari undirbúning. Hafnarfjörður mætir verkefninu af yfirvegun, samstöðu og ábyrgð. Höfundur er bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar