Menntamál ættu ekki að vera pólitískt þrætuefni Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 24. apríl 2026 08:02 Þegar menntamál eru til umræðu líður oft ekki á löngu þar til einhver er farinn að tala um hægri og vinstri, aðhald eða fjárfestingu og hvort stefnt sé í rétta eða ranga átt. Skyndilega snýst umræðan ekki um börn heldur einstaka stjórnmálamenn og flokka. Í grundvallaratriðum viljum við öll það sem er börnunum fyrir bestu. Við viljum að þeim líði vel líkamlega og andlega í þeim aðstæðum sem við sköpum þeim, á heimilinu, í skólanum og í tómstundum. Það er varla nokkur á móti því að öll börn læri að lesa sér til gagns og gamans. Að þau læri að skrifa og reikna og að þau vaxi úr grasi með gott sjálfstraust og jákvæða sjálfsmynd. Við viljum að börn fái tækifæri til að velja áhugamál og stunda þær íþróttir sem hugur þeirra leitar til. Allt þetta ætti að standa börnum til boða óháð efnahag foreldra og búsetu. Um þessi atriði ætti ekki þurfa að þrasa. Allt eru þetta áherslur sem yfirvöld menntamála, kennarar og samtök þeirra, foreldrar og börnin sjálf ættu að geta sameinast um. Menntamál eru ekki vandamál Það er allt of oft og mikið fjallað um menntamál eins og þau séu fyrst og fremst fjárhagsleg byrði á ríki og sveitarfélögum. Menntamál eru stöðugt pólitískt þrætuepli. Það er talað um „kerfið", um „fjárveitingarvaldið" og gleymist þá allt of oft að inni í þessu kerfi eru raunveruleg börn og kennarar sem gera sitt besta á hverjum degi. Flokkur fólksins vill horfa á gildin og hlusta vandlega á raddir í samfélaginu. Við deilum mun fleiri gildum í menntamálum en við gefum okkur tíma til að taka eftir. Þau gildi eru m.a. að börn fái að vera börn, að skólinn sé öruggur staður og að kennarar geti sinnt starfi sínu af heilum hug, án þess að vera undir álagi skrifræðis og streitu. Ég er ekki að segja að stjórnmál eigi ekkert erindi við menntamál. Auðvitað þarf að taka ákvarðanir um fjármagn og skipulag og þar geta skoðanir verið misjafnar. En það er munur á því hvort menntamál eru fyrst og síðast rædd út frá flokkapólitík eða mannlegum gildum. Spurningin ætti alltaf að vera hvað er börnunum fyrir bestu. Íslendingar hafa alla tíð metið menntun mikils og læsi hefur verið hér landlægt allt frá landnámi. Það liggur djúpt í þjóðarmenningunni og þjóðarsálinni. Vissulega má deila um hvernig við náum settum markmiðum, en við þurfum ekki að deila um markmiðin sjálf. Menntamál eru of mikilvæg til að þvæla þeim í endalausar pólitískar skotgrafir sem engu skila. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar