Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Bjarki Sigurðsson skrifar 21. apríl 2026 12:03 Stefán Sveinbjörnsson er framkvæmdastjóri VR. Vísir/Egill Framkvæmdastjóri VR segir gagnrýni á launahækkun formanns félagsins ekki koma á óvart. Tímasetningin sé ekki verri en aðrar. Formaður Eflingar segir breytinguna ekki standast lög ASÍ en framkvæmdastjórinn vísar gagnrýninni á bug.
Laun Höllu Gunnarsdóttur formanns VR voru á síðasta fundi stjórnar hækkuð um tæpar tvö hundruð þúsund krónur. Hækkunin var gerð þegar unnið var að því að auka gagnsæi launakjara formanns. Hingað til hafði formaður þegið greiðslur frá VR fyrir formennsku og frá öðrum félögum fyrir launuð störf tengd formennskunni. Til að mynda hafa formenn VR í gegnum tíðina gegnt embætti varaforseta ASÍ og formennsku í LÍV. Ákveðið var að í stað þess að þiggja greiðslur frá öðrum félögum skyldu þær launagreiðslur renna til VR og formaðurinn þess í stað fá fasta krónutölu frá VR, sama hvaða launuðu aukastörfum hann sinnir. Gagnrýnin á hækkunina Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur gagnrýnt hækkunina og sagt það illskiljanlegt að laun formanns VR hækki um tólf prósent þegar langtímakjarasamningar eru í mikilli óvissu. Stefán Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri VR, segir gagnrýnina ekki koma á óvart. „Þegar er verið að gera breytingar er það yfirleitt gagnrýnisvert en við teljum að það sé heilbrigðara að hafa þetta svona, með gagnsæjum hætti,“ segir Stefán. Það greiddi einn stjórnarmanna atkvæði gegn breytingunni, hann sagði tímasetningu breytingarinnar óheppilega. Er það eitthvað sem þið takið undir? „Það er alltaf hægt að segja að það sé röng tímasetning á svona breytingum. Hvenær er rétti tíminn?“ spyr Stefán. Engin breyting fyrir ASÍ Formaður Eflingar hefur einnig sagt breytinguna á skjön við lög ASÍ og að hún beri vott um vonda stjórnsýslu. „Það í sjálfu sér breytir okkur ekki máli hvort launin renni til formannsins eða beint til VR. Það breytir ekki tölunni sem slíkri, hún er bara föst. Þetta er bara útfærsluatriði. Það má líka segja að við erum líka að greiða til ASÍ eins og önnur stéttarfélög. Fyrir ASÍ eru engin fjárútlát við þessa breytingu,“ segir Stefán. Formaður Eflingar kallar þetta vonda stjórnsýslu, getur þú tekið undir það? „Nei, það get ég ekki gert. Ég myndi segja að við séum að gera ferlið gagnsætt hjá okkur á meðan það var ógagnsætt hver laun formanns voru þegar hann var að þiggja laun annars staðar frá. Og gat þá verið að breyta sínum kjörum með því að taka að sér önnur embætti.“
Stéttarfélög Kjaramál Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira