Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Kjartan Kjartansson skrifar 20. apríl 2026 09:34 Stefán Pálsson, sagnfræðingur, gæti orðið þriðji borgarfulltrúi Vinstrisins. Það er sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, fyrrverandi sósíalista. Vísir/Vilhelm Líkur Vinstrisins á að ná þremur mönnum inn í borgarstjórn í Reykjavík fara vaxandi í nýuppfærðri kosningaspá Vísis. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin eru enn jöfn en sjálfstæðismenn eygja nú möguleikann á að ná sjöunda manninum inn, einum fleiri en keppinauturinn. Stóra myndin í kosningaspá Baldurs Héðinssonar, stærðfræðings, hefur lítið breyst eftir að hún var uppfærð með niðurstöðum úr könnun Gallup sem var birt fyrir helgi. Lítill munur er þannig áfram á fylgi stóru flokkanna tveggja sem stefna í að fá sex menn kjörna hvor. Meirihlutamynstur eftir kosningar gæti ráðist af því hvernig atkvæði dreifast á milli Vinstrisins, Viðreisnar og Miðflokksins sem fengju að minnsta kosti tvo borgarfulltrúa hvert framboð og keppast um að ná inn þeim þriðja. Stefán Pálsson, þriðji maður á lista Vinstrisins, hefur nú 79 prósent líkur á að ná kjöri samkvæmt kosningaspánni en hann hafði um helmingslíkur áður en spáin var uppfærð. Á móti hafa líkur Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar, þriðja manns á lista Viðreisnar, dregist saman úr 72 prósentum í 56 prósent eftir að könnun Gallup var birt. Lárus Blöndal, þriðji maður á lista Miðflokksins fer úr 52 prósent líkum í 48 prósent. Sjálfstæðisflokkur fram úr Samfylkingu Fylgi Sjálfstæðisflokksins í kosningaspánni jókst um tvö prósentustig eftir að hún var uppfærð og Samfylkingarinnar dalaði um tæpt prósentustig. Sjálfstæðisflokkurinn er nú stærstur í kosningaspánni. Þetta hefur þau áhrif að Albert Guðmundsson, sjöundi maður á lista sjálfstæðismanna, hefur nú 49 prósent líkur á að komast inn en þær voru rétt innan við þrjátíu prósent áður en spáin var uppfærð. Albert Guðmundsson er fyrrverandi formaður Heimdallar og formaður Varðar. Hann gæti komist inn í borgarstjórn sem sjöundi maður Sjálfstæðisflokksins.Sjálfstæðisflokkurinn Regína Ásvaldsdóttir, sjöunda á lista Samfylkingarinnar, hefur nú fjórðungslíkur á að komast inn en hafði rétt rúmlega þriðjungslíkur á dögunum. Tvísýnt um framtíð þriggja flokka Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins, berst fyrir tilvist flokksins í borgarstjórn. Hann hafði 76 prósent líkur á að komast að áður en spáin var uppfærð en þær standa nú í 67 prósentum. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá Píratar eru í sömu stöðu. Kristinn Jón Ólafsson, oddviti þeirra, er nú með 65 prósent líkur á að ná inn en hafði 76 prósent líkur fyrir uppfærslu. Líkur Guðmundar Inga Þóroddssonar, oddvita Flokks fólksins, eru lítið breyttar og standa nú í 57 prósentum. Fjórðungslíkur eru á að Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, nái inn í borgarstjórn. Líkur Sigfúsar Aðalsteinssonar, oddvita Okkar borgar, eru vart mælanlegar. Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Gallup sem var gerð fyrri helming aprílmánaðar hefur 59 prósent vægi í nýjustu útgáfu spárinnar en könnun Maskína frá miðjum mars 41 prósent vægi. Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Reykjavík Skoðanakannanir Kosningaspá Vísis Vinstrið Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Stóra myndin í kosningaspá Baldurs Héðinssonar, stærðfræðings, hefur lítið breyst eftir að hún var uppfærð með niðurstöðum úr könnun Gallup sem var birt fyrir helgi. Lítill munur er þannig áfram á fylgi stóru flokkanna tveggja sem stefna í að fá sex menn kjörna hvor. Meirihlutamynstur eftir kosningar gæti ráðist af því hvernig atkvæði dreifast á milli Vinstrisins, Viðreisnar og Miðflokksins sem fengju að minnsta kosti tvo borgarfulltrúa hvert framboð og keppast um að ná inn þeim þriðja. Stefán Pálsson, þriðji maður á lista Vinstrisins, hefur nú 79 prósent líkur á að ná kjöri samkvæmt kosningaspánni en hann hafði um helmingslíkur áður en spáin var uppfærð. Á móti hafa líkur Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar, þriðja manns á lista Viðreisnar, dregist saman úr 72 prósentum í 56 prósent eftir að könnun Gallup var birt. Lárus Blöndal, þriðji maður á lista Miðflokksins fer úr 52 prósent líkum í 48 prósent. Sjálfstæðisflokkur fram úr Samfylkingu Fylgi Sjálfstæðisflokksins í kosningaspánni jókst um tvö prósentustig eftir að hún var uppfærð og Samfylkingarinnar dalaði um tæpt prósentustig. Sjálfstæðisflokkurinn er nú stærstur í kosningaspánni. Þetta hefur þau áhrif að Albert Guðmundsson, sjöundi maður á lista sjálfstæðismanna, hefur nú 49 prósent líkur á að komast inn en þær voru rétt innan við þrjátíu prósent áður en spáin var uppfærð. Albert Guðmundsson er fyrrverandi formaður Heimdallar og formaður Varðar. Hann gæti komist inn í borgarstjórn sem sjöundi maður Sjálfstæðisflokksins.Sjálfstæðisflokkurinn Regína Ásvaldsdóttir, sjöunda á lista Samfylkingarinnar, hefur nú fjórðungslíkur á að komast inn en hafði rétt rúmlega þriðjungslíkur á dögunum. Tvísýnt um framtíð þriggja flokka Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins, berst fyrir tilvist flokksins í borgarstjórn. Hann hafði 76 prósent líkur á að komast að áður en spáin var uppfærð en þær standa nú í 67 prósentum. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá Píratar eru í sömu stöðu. Kristinn Jón Ólafsson, oddviti þeirra, er nú með 65 prósent líkur á að ná inn en hafði 76 prósent líkur fyrir uppfærslu. Líkur Guðmundar Inga Þóroddssonar, oddvita Flokks fólksins, eru lítið breyttar og standa nú í 57 prósentum. Fjórðungslíkur eru á að Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, nái inn í borgarstjórn. Líkur Sigfúsar Aðalsteinssonar, oddvita Okkar borgar, eru vart mælanlegar. Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Gallup sem var gerð fyrri helming aprílmánaðar hefur 59 prósent vægi í nýjustu útgáfu spárinnar en könnun Maskína frá miðjum mars 41 prósent vægi.
Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Gallup sem var gerð fyrri helming aprílmánaðar hefur 59 prósent vægi í nýjustu útgáfu spárinnar en könnun Maskína frá miðjum mars 41 prósent vægi.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Reykjavík Skoðanakannanir Kosningaspá Vísis Vinstrið Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira