Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. apríl 2026 21:13 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Vilhelm Fleiri Íslendingar eru andvígir aðild að Evrópusambandinu nú en fyrir ári síðan miðað við árlega könnun sem Maskína gerir fyrir utanríkisráðuneytið. 46 prósent segjast vera andvíg aðild í dag en sá fjöldi var 39,8 prósent þegar könnunin var framkvæmd á svipuðum tíma í fyrra. Þá hefur stuðningur við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu ekki mælst hærri.
Greint er frá niðurstöðum skoðanakönnunarinnar í tilkynningu á vef ráðuneytisins. Þar kemur meðal annars fram að 42 prósent Íslendinga séu nú hlynnt því að aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu verði teknar upp að nýju. 39 prósent eru mótfallin því. Á sama tíma í fyrra voru 44,6 prósent hlynnt því að viðræðurnar yrðu teknar upp að nýju en 33,6 prósent andvíg. Fram kemur að 31 prósent sé hlynnt inngöngu í dag, 23 prósent í meðallagi hlynnt eða andvígt því en 46 prósent andvíg inngöngu. Samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins fyrir ári var stuðningur við inngöngu þá í 36,5 prósentum en 39,8 prósent voru andvíg. Þeim sem eru andvígir því fjölgað um rúm sex prósent milli ára. Könnunin í fyrra fór fram á netinu dagana 27. mars til 3. apríl 2025 og voru svarendur 981. Í könnuninni í ár voru svarendur 936 og fór könnunin fram á netinu dagana 12. til 19. mars 2026. Í tilkynningu ráðuneytisins í ár kemur fram að fast að helmingur aðspurðra, eða 49 prósent, telji að aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi auka efnahagslegan stöðugleika hér á landi. Þrjátíu prósent telja að aðild að ESB myndi hafa þveröfug áhrif og 31 prósent telur að slíkt myndi engin áhrif hafa. 39 prósent telja að aðild Íslands að ESB myndi auka öryggi hérlendis, tuttugu prósent telja að aðild myndi draga úr öryggi og 41 prósent telur að það myndi haldast óbreytt. Þá kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins að stuðningur við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu hafi ekki mælst meiri frá því að mælingar utanríkisráðuneytisins hófust 2019. 72 prósent aðspurðra eru jákvæð gagnvart aðild þjóðarinnar að varnarbandalaginu, á meðan sjö prósent líta aðild Íslands neikvæðum augum. Fram kemur að mikill meirihluti telji mikilvægt að Ísland rækti alþjóðlegt samstarf og að Ísland tali fyrir alþjóðalögum og mannréttindum á alþjóðavettvangi. Könnunin sýnir að 69 prósent telja að þátttaka Íslands í alþjóðasamvinnu styrki fullveldi Íslands. 73 prósent telja að hagsæld Íslands byggi að miklu leyti á alþjóðlegri samvinnu og 22 prósent til viðbótar segja hana skipta í meðallagi miklu máli. 82 prósent telja að hagsæld Íslands byggist að miklu leyti á alþjóðlegum viðskiptum og 17 prósent í meðallagi.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Skoðanakannanir Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira