„Galið“ að Stjörnumenn spili sig sem fórnarlömb Aron Guðmundsson skrifar 10. apríl 2026 08:31 Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR og Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar Vísir/Samsett (Pawel) Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, gefur lítið fyrir gagnrýni þjálfara Stjörnunnar á dómgæsluna í öðrum leik liðanna sem endaði með sigri KR. Hann telur það engin áhrif munu hafa að Garðbæingar spili sig sem fórnarlamb. Þeir brjóti ítrekað af sér, væli svo og tuði. Leikur þrjú í einvígi liðanna fer fram í kvöld.
KR jafnaði einvígi liðanna í stöðuna 1-1 með sigri á heimavelli á mánudaginn síðastliðinn. Eftir leik lét Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, í ljós óánægju sína með dómgæsluna í leiknum. Máli sínu til stuðnings benti Baldur viðtalsmanni Vísis á fjölda vítaskota sem hvort lið fékk í leiknum. KR fékk 29 vítaskot, Stjarnan átta. Þegar að villufjöldi liðanna er svo skoðaður má sjá að Garðbæingar voru duglegri við að safna villum. Alls 25 villum á móti 17 villum KR-inga. Ekkert óeðlilegt á ferðinni Jakob Örn, þjálfari KR, tekur ekki undir gagnrýni Baldurs og telur í raun ekki hægt að bera saman tölfræði eins og þessa og ætlast til þess að hún sé eins hjá báðum liðum. „Við spilum ekki sama varnarleik og Stjarnan,“ segir Jakob í samtali við Vísi. „ Þeir sem fylgjast með þessum leikjum sjá að þegar Stjarnan er að spila vörn þá eru þeir mjög harðir. Þeir brjóta mjög mikið. Ýta og halda. Brjóta af sér í nánast hverri einustu vörn. Á sama tíma væla þeir og tuða þegar það er dæmt á þá. Reyna að hafa áhrif þannig. Heilt yfir eru þessi tvö lið ekki að spila sama varnarleikinn. Því held ég að það sé ekkert óeðlilegt við það að Stjarnan fái á sig fleiri villur og slíkt.“ Jakob segir Stjörnuna spila harða vörn. Halda og ýta.Vísir/Pawel Nokkrir lykilmenn Stjörnunnar komust nokkuð snemma í villuvandræði í leik númer tvö í einvíginu. Jakob er á því að ef dæmt væri venjulega allan leikinn yrði útlitið enn verra fyrir Stjörnuna. „Þá væru fjórir leikmenn hjá Stjörnunni farnir út af með fimm villur. Ég held að þeir viti það líka. Þeir vita hvernig þeir eru að spila vörnina. Þeir vita að þeir eru að brjóta af sér, vita að þeir munu fá dæmdar villur á sig en eru samt að reyna hafa áhrif þannig að þeir geti haldið sér inn á vellinum.“ Spili sig sem fórnarlömb Finnst þér þetta lykta af því að þeir séu að reyna hafa áhrif á það hvernig lína er dregin í þessu einvígi? „Ég veit ekki hvað þeir eru að hugsa. Ég veit bara að það er ekki hægt að bera þetta saman því þetta er tvennt ólíkt. Það að þeir séu að reyna gera sig að einhverjum fórnarlömbum í þessu er bara alls ekki rétt. Svolítið galið. Við ætlum bara að halda áfram að spila okkar leik. Reyna að láta þetta ekki hafa áhrif á okkur. Þegar allt kemur til alls held ég dómararnir muni hafa rétt fyrir sér. Mér finnst þeir hafa staðið sig vel í þessum fyrstu tveimur leikjum. Tel að það hafi ekki hallað meira á annað liðið heldur en hitt.“ KR stimplaði sig inn í einvígið með sigri á heimavelli á mánudaginn. Í fyrsta leik karlaliðs félagsins í úrslitakeppni efstu deildar í nokkur ár og var stemningin frábær. Úrslitakeppni efstu deildar karla mætt aftur í KR-heimilið.Vísir/Pawel „Það er mikið af fólki sem er búið að bíða í nokkur ár eftir því að fá þessa stemningu aftur í KR-heimilið. Ég var bara gríðarlega ánægður með að ná í sigur en líka með mætinguna, stemninguna í salnum heilt yfir. Það gerði mjög mikið fyrir félagið og fólkið í hverfinu. Að sjá að þetta er komið aftur í Vesturbæinn.“ Meira af því sama Leikur þrjú í einvígi liðanna fer fram í Garðabænum í kvöld. Veislan heldur áfram og leikirnir til þessa engan svikið. Jakob á von á meira af því sama í kvöld. „Ég á auðvitað bara von á gríðarlega erfiðum leik. Stjarnan er mjög gott lið, þeir eru sterkir á heimavelli og ríkjandi Íslandsmeistarar. Ég myndi halda að þetta yrði nokkuð svipað og fyrstu tveir leikirnir í þessu einvígi. Hraður leikur, líkamlega erfiður og lítið sem skilur liðin að. Í þessum fyrstu tveimur hafa hlutir eins og að skora stig á réttum tímapunktum í leiknum og fá stoppin á réttum tímapunktum til að fá mómentið með sér verið að skilja liðin að. Ég á ekki von á öðru en það verði nokkuð svipað í þessum leik.“ Leikur þrjú í einvígi Stjörnunnar og KR í úrslitakeppni Bónus deildar karla í körfubolta hefst klukkan hálf átta í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Bónus-deild karla KR Stjarnan Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira